Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands segir að þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið borgi sig eins og almennt í lífinu sjálfu að mynda sér ekki skoðun fyrr en að undangenginni skoðun. Minnir hann ennfremur á að fullveldi taki breytingum og þróist.
Guðni tjáir sig um atkvæðagreiðsluna í nýjasta þætti hlaðvarps Evrópuhreyfingarinnar, Meginlandið, en það er í umsjón Helgu Völu Helgadóttur og Páls Rafnars Þorsteinssonar.
Guðni minnir í þættinum á að sjálfstæði ríkis feli ekki í sér að því komi ekkert við hvað gerist utan landsteina þess:
„Maður gerir ýmsa samninga. Maður gerir kaupsamning, gengur i hjónaband og er þó áfram lögráða. Það eru vissar samlíkingar þar. Auðvitað er ekkert ríki í samtímanum sjálfstætt að því leyti að það varði ekki nokkurn skapaðan hlut hvað gerist utan landsteina þess Þá erum við komin á slóðir Bjarts í Sumarhúsum sem sagði að sjálfstæðið snerist um að ráða sér sjálfum en það fór ekki vel hjá honum og ekki síður hans fólki.“
Skoðun
Guðni segir það vera almennt svo að heppilegra sé að áður en maður myndi sér skoðun á einhverju kynni maður sér það. Þegar komi að skoðunum eigi fólki hins vegar ekki að sýna af sér hroka:
„Orðið skoðun er mjög skemmtilegt orð. Ég hef skoðun á hinu og þessu. En mér þætti alltaf best ef á undan skoðun kæmi skoðun. Að menn hefðu skoðað málið áður en þeir mynda sér skoðun. Er það til of mikils mælst? Á sama tíma verðum við að forðast allt sem heitir menntahroki eða þekkingarhroki. Að segja að mín skoðun hljóti að vera ríkari í krafti þess ég sé í ákveðinni stöðu. Þannig er það því miður of oft á Íslandi að menn mynda sér skoðun áður en þeir hafa framkvæmt skoðun.“
Fullveldi smáþjóðar
Guðni rekur í þættinum að betra sé fyrir smáþjóð að í alþjóðakerfinu ráði ekki alfarið réttur stærstu og ríkustu þjóðanna:
„Smjáþjóð í hörðum heimi verður að reiða sig á það alþjóðaskipuleg að réttur hins ríka ráði ekki. Við eigum að fagna því að því sjónarmiði hafi vaxið fylgi á alþjóðavettvangi að smærri ríki þyrftu ekki að eiga allt sitt undir því að njóta velþóknunar og vilja hinna sterkari.“
Þegar kemur að hinu margumrædda hugtaki fullveldi minnir Guðni á að það geti ekki verið óumbreytanlegt:
„Fullveldi er ekki meitlað í stein - fullveldi þróast og breytist. Mér finnst við búa í frjálsu og fullvalda ríki. Ekki þrátt fyrir þá alþjóðasamvinnu - heldur jafnvel vegna hennar.“
Þáttinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan: