Fréttir

Stórfelldur skattsvikari meðal þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi í stærsta kókaínmáli Íslandssögunnar

Mynd
Mynd/Wikipedia

Einn þeirra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna stærsta kókaínsmygls Íslandssögunnar er Lúther Ólason. Þetta kom fram í hádegisfréttum Rásar 2.

Lúther var fyrir tveimur árum dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot þar sem honum var jafnframt gert að greiða 55 milljónir í sekt til ríkissjóðs. Sektin var síðar lækkuð niður í 51 milljón í Landsrétti.

Áður hefur verið greint frá því að Lárus Freyr Einarsson er líka meðal þeirra níu sem eru í haldi vegna málsins en hann var árið 2011 dæmdur í 14 mánaða fangelsi í Danmörku fyrir morð.

Eins og áður segir eru níu í haldi vegna málsins sem tengist innflutningi á rúmlega 100 kílóum af kókaíni sem flutt voru sjóleiðis til Straumsvíkur. Af þessum níu eru þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar. Kókaíninu var smyglað með skipinu Koznitaz frá Brasilíu sem siglir undir maltneskum fána.

Hæstiréttur synjaði í janúar beiðni Lúthers um áfrýjunarleyfi vegna skattalagabrotsins, en hann var sakfelldur fyrir að hafa sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Stapafells ehf., sem hefur verið úrskurðað gjaldþrota, staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2017 til og með 2019. Meðal annars snerust brot Lúthers um að hafa fært til gjalda tilhæfulausa reikninga frá félögum sem samverkamenn hans stóðu að.

Sjá einnnig: Fjórir skattsvikarar fá háar sektir en sleppa við atvinnurekstrarbann