Spilabúð í bænum Beaverton í Oregon fyli í Bandaríkjunum þurfti að aflýsa Yu-Gi-Oh móti vegna kvartana um hreinlæti þátttakenda. Voru þeir svo sveittir og skítugir að aðrir gestir búðarinnar gátu ekki verið nálægt þeim.
Fréttamiðillinn UPI greinir frá þessu.
Yu-Gi-Oh er japanskt kortaspil, ekkert ósvipað og Pokemon. Líkt og í Pokemon, Magic og fleirum eru reglulega haldin Yu-Gi-Oh mót í spilabúðum út um allan heim.
Það var spilabúðin Chronos Games & Gifts sem tilkynnti að öllum Yu-Gi-Oh mótum yrði aflýst í að minnsta kosti viku.
„Við höfum fengið kvartanir um slæma umhirðu á klósettunum og slæmar umsagnir um hreinlæti,“ segir í tilkynningu búðarinnar.
Framleiðandi Yu-Gi-Oh, Konami Games, gefur út reglur um hreinlæti á viðburðum. Er fólk hvatt til þess að tilkynna um þátttakendur sem brjóta þessar reglur svo sem varðandi óhrein föt og slæma líkamslykt.