Hnífstunguárásir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið tíðar að undanförnu. Þrjár árásir hafa verið í fréttum frá því um síðustu helgi. Fremur óvenjulegt mál kom upp í gærkvöld, á horni Grettisgötu og Barónsstíg, fyrir utan söluturninn Vikivaka. Blóðug úlpa og bolur manns sem hafði orðið fyrir hnífstungu lágu í götunni og lögregla rannsakaði fötin á vettvangi. Meintur árásarmaður var handtekinn og bíll hans, hvítur Benz, tekinn traustataki. Eigandi bílsins, sem líklega er grunaður árásarmaður, ber austurevrópskt nafn, er með heimilisfang í götunni Vesturbergi í Reykjavík og er fæddur árið 1999.
Sérsveit ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni en Grettisgötu var um tíma lokað frá Snorrabraut.
Upplýst hefur verið að mennirnir þekktust. Brotaþoli var fluttur á bráðamóttöku en áverkar hans reyndust ekki vera alvarlegir. Samkvæmt mbl.is var ekki búið að taka skýrslu af hinum grunaða í morgun.
Tvær árásir um síðustu helgi
Um síðustu helgi komu upp tvö stórhættuleg atvik þar sem hnífi var beitt. Á föstudagskvöld réðst maður vopnaður stórum hnífi á öryggisvörð inni á Álfinum Sportbar í Hólagarði, Lóuhólum. Öryggisverðir frá fyrirtækinu Top Guard sinntu þar öryggisgæslu en maðurinn kom inn á barinn og lét vægast sagt ófriðlega. Öryggisverðirnir yfirbuguðu manninn á vettvangi og komu síðan lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra á vettvang og maðurinn var handtekinn. Maðurinn veitti öryggisverði á vettvangi lítilsháttar áverka. Maðurinn hafði áður ógnað börnum fyrir utan staðinn.
Á laugardagskvöld var síðan maður stunginn með hnífi á ölstofunni Riddaranum við Engihjalla 8. Starfsstúlka á barnum virkjaði neyðarhnapp til öryggisþjónustunnar Top Guard og öryggisverðir komu á vettvang og yfirbuguðu manninn. Lögregla kom síðan á staðinn og handtók árásarmanninn.
Í öllum þessum tilvikum reyndust áverkar brotaþola ekki vera alvarlegir. Hlýtur það að teljast mikil mildi og ljóst að mjög illa getur farið í tilvikum á borð við þessi.