Útvarpsmennirnir Sigvaldi Kaldalóns (Svali) og Sigmar Vilhjámsson (Simmi) eru nú umsjónarmenn Bítisins á Bylgjunni, sem er í loftinu virka daga frá kl. 6.50-10. Á hverjum degi er símatími og dagurinn í dag var ekki öðruvísi. Svaraði Simmi undir lok þáttarins símtali frá karlmanni, sem var verulega ósáttur:
„Ég ætlaði að koma með smá athugasemd. Það er frábært úrval af afleysingafólki sem hefur verið núna í sumar að undanskildum einn. Hann heitir Sigmar.“
Simmi spyr hvort hann sé hræðilegur og svarar þá hlustandinn: „Alveg ömurlegur. Þú ert hlutdrægur.“ Vísaði hlustandinn meðal annars til umræðu um ESB og sagði það heyrast alveg að Simmi væri hlutdrægur, bæði af umræðu í dag og um daginn.
„Þú ættir aðeins að hugsa þig um, þú ert að eyðileggja Bylgjuna, sem er vinsælasta útvarpsstöð á landinu. Svali, Ómar og útvarpsstjórinn hvað hann heitir eru frábærir, en þú ert ömurlegur.“
„Ég ber virðingu fyrir skoðun þinni á þessu,“ aagði Simmi, „en ef þú spyrð mig persónulega hvað mér finnst um Evrópusambandið þá er ég algjörlega á báðum áttum og veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga.“
Hlustandinn gaf sig ekki: „Þú ert að ljúga þá vegna þess að það heyrist svo vel í gegn.“
„Ég skal sitja undir áliti þínu á mér, en ég sit ekki undir að þú teljir mig lygara,“ sagði Simmi. „Það er stigsmunur þarna á milli, ég ber virðingu fyrir skoðun þinni. En ég vil ekki að þú gerir mér upp að ég sé að ljúga, ég bara segi alveg satt.“
„En þú ert að eyðileggja morgunþáttinn,“ endurtók hlustandinn.
„Mér þykir það leiðinlegt að heyra, en takk fyrir að hringja og ég ber virðingu fyrir skoðun þinni,“ sagði Simmi.
„Sko einhvern tíma hefði maður haldið af hverju þarf maður að fara þangað,“ sagði Svali þegar hann komst loks að þegar símtalinu var slitið. „Það er bara allt í góðu, þetta er bara útvarp allra landsmanna. Mér finnst allar skoðanir eiga rétt á sér,“ sagði Simmi.
„Þetta er svo galið,“ sagði Svali.
„Símatímar í útvarpi er eins og konfektkassi, maður veit aldrei hvað maður fær,“ segir Simmi um atvikið eftir á.