Fréttir

Staðfesta hnífstunguárás við Vikivaka

Mynd
Mynd: Aðsend

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á stöð 1 sem sinnir meðal annars miðbænum barst í gærkvöldi tilkynning um blóðugan aðila sem hafði orðið fyrir líkamsárás. 

Kom í ljós að viðkomandi hafði verið stunginn með hníf. 

Ekki er greint frá því í dagbók lögreglunnar um verkefni síðustu næturvaktar hvar árásin átti sér stað, en gera má ráð fyrir að um sé að ræða atvikið við Vikivaka á horni Grettisgötu og Barónsstíg sem DV greindi frá í gærkvöldi.

Sjá einnig: Hnífstunguárás: Lögregluaðgerð við söluturninn Vikivaka

Greinagóð lýsing fylgdi tilkynningu til lögreglunnar, sem hafði upp á árásaraðila stuttu síðar. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. 

Árásarþoli var færður á bráðamóttökuna til aðhlynningar. Málið er í rannsókn.