Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður víetnamska athafnamannsins Quang Lé, fullyrðir að ekkert sé að gerast í rannsókn lögreglu á ætluðum brotum skjólstæðings hans.
Quang Lé hefur sætt farbanni síðan sumarið 2024 vegna gruns um mansal, skjalafals og peningaþvætti. Í nýjum farbannsúrskurði Landsréttar yfir athafnamanninum segir að brotaþolar í málinu séu 29 talsins.
Landsréttur staðfesti nýlega farbannsúrskurð héraðsdóms yfir Quange Lé en styttir tímann um úr 25. september til 1. september. Það telur Sveinn vera skilaboð frá Landsrétti til lögreglu:
„Þetta er í annað sinn sem Landsréttur styttir farbannsúrskurð héraðsdóms. Þetta eru að mínu mati skýr skilaboð frá Landsrétti um að þetta sé að verða ágætt, þannig að ég held að þetta hljóti að marka slútt á þessum tveggja ára farbannstíma. Hann hefur verið í farbanni síðan 20. júní 2024,“ segir Sveinn í viðtali við DV, en Quang Lé var í gæsluvarðhaldi í þrjá mánuði vorið 2024 en síðan tóku við farbannsúrskurðir.
„Ég trúi ekki öðru en lögregla meðtaki þau skilaboð sem hún er búin að fá núna. Það þarf eitthvað róttækt að vera búið að gerast í málinu til þess að dómstólar fari að samþykkja lengra farbann,“ segir Sveinn ennfremur.
Sp: Finnst þér vera lítill gangur í rannsókninni?
„Enginn gangur. Það er ekkert að gerast í rannsókninni. Það var sagt í apríl að þetta væri á lokametrunum, það er aftur sagt núna að þetta sé á lokametrunum, þannig að þessir lokametrar eru ansi langir og margir.“