Fréttir

Myndir úr Breiðholti sýna hversu illa Reykjavíkurborg sinnir úthverfum: „Blasir við eitthvað annað viðhorf til umhverfis og þar af leiðandi til íbúanna“

Mynd

DV barst ábending og myndir frá borgarbúa sem búsettur er í hverfi 101 í borginni, en þurfti að fara í Breiðholt. Segir viðkomandi að honum hafi krossbrugðið við í hversu mikilli niðurníðslu svæði og byggingar sem Reykjavíkurborg ber ábyrgð á eru:

„Langar að benda á hversu illa úthverfin eru hirt af Reykjavíkurborg. Krossbrá við að sjá að einu svæðin í efra Breiðholti sem eru í niðurníðslu eru svæði og byggingar sem Reykjavíkurborg ber ábyrgð á. Flest allar blokkir í 111 eru í topp viðhaldi og garðarnir einnig. Allt sem Reykjavík á að sjá um er í algerri niðurníðslu, svo sjúskað og ógeðslegt að það ætti ekki að bjóða fólki upp á þetta.“ 

Tók viðkomandi meðal annars myndir af krúnudjásni borgarinnar í 111 Gerðubergi og garðinum við heilsugæslu Breiðholts og Iðjubergi.

„Þú sérð ekki svona á neinu svæði sem borgin sér um vestan 108, en þegar ofar er komið blasir við eitthvað annað viðhorf til umhverfis og þar af leiðandi til íbúanna. Þetta er eitthvað sem við myndum aldrei sjá í Vesturbænum eða Laugardal til dæmis.“ 

 

 

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd
Mynd