Sjö ára stúlka í Kaliforníu á fyrir höndum langan veg til bata eftir að hundar réðust á hana og rifu af henni höfuðleðrið.
Á söfnunarsíðunni GoFundMe er greint frá árásinni og söfnun fyrir fjölskylduna. En stúlkan, sem heitir Patricia, varð fyrir árás þann 27. júní í bænum Corning, norðan við borgina Sacramento í norðurhluta Kaliforníu.
Nokkrir hundar réðust að barninu í einu með hræðilegum afleiðingum. Höfuðleðrið rifnaði af henni og hún fékk einnig alvarlega áverka á fótleggjum. Var hún fyrst á sjúkrahús í nágrenninu en síðan flutt með sjúkraflugi á stærri spítala.
„Patricia er ótrúlega sterk lítil stúlka, og staðfesta hennar er hvati fyrir alla í kringum hana,“ segir í færslu með söfnuninni. Faðir hennar og bræður voru við hlið hennar öllum stundum á sjúkrahúsinu en hún fékk að fara heim þann 30. júní.
Sex hundar sem réðust á Patriciu hafa verið teknir af eiganda sínum á meðan lögregla rannsakar málið. Þá er búist við því að bati Patriciu muni taka langan tíma.