Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segist hafa miklar áhyggjur af skólakerfinu, gríðarlegum skorti á almennilegu námsefni og nýtingu kennara á gervigreind við námsefnisgerð.
„Ég veit ekki með ykkur en ég hef miklar áhyggjur af skólakerfinu okkar. Ég hef stundum tekið þátt í að búa til námsefni, stundum sem höfundur, en einnig sem myndritstjóri, og það er mikil, alvöru vinna. Samt virðast margir kennarar eiga að töfra fram námsefni meðfram því að kenna börnunum okkar. Kennarinn í næsta skóla sem vinnur með sama aldur, sömu námsgrein og eftir sömu námskrá ver svo einnig stórum hluta af sínum vinnutíma í að búa til námsefni sem nýtist bara í hans kennslu af því að það er gríðarlegur skortur á almennilegu námsefni í kerfinu. Þegar þessir ágætu kennarar snúa sér að öðru, kannski eftir skiljanlega kulnun vegna krefjandi vinnu við að bera sólskin í húfu inn í gluggalaust hús, verður sú vinna sem þeir hafa lagt í sína prívat námsgagnagerð að engu,“
segir Margrét í færslu sinni í gær.
Segir hún starfsfólk Rithöfundasambandsins hafa orðið vör við að margir kennarar eru farnir að nýta gervigreind við námsefnisgerð. Segir Margrét það skiljanlegt þegar ástandið er svona.
„Margt sem við vitum að verið er að gera eru þó klár brot á höfundarétti, bæði mynd- og textahöfunda. Við vitum til þess að heilu bókunum eftir íslenska höfunda hafi verið hlaðið inn og þær þýddar af gervigreind fyrir nemendur af erlendum uppruna og að kennarar láti gervigreind búa til verkefni með myndefni úr vinsælum barnabókum.“
Margrét segir núverandi ástand fullkomlega óboðlegt en við því er til lausn. Fjárfesta þarf í námsefnisgerð og ekki aðeins núna, heldur alltaf.
„Hlutfallslega þyrfti Ísland að verja mun meiri til námsefnisgerðar en hin Norðurlöndin. Börnin okkar þurfa nefnilega að kunna allt það sama og börnin þar en eru miklu færri.“
Með færslu sinni deilir Margrét mynd af hlutfalli rekstrarkostnaðar í námsgögn, hjá Íslandi er hlutfallið 0,4%, meðan það er frá 1,5% hjá hinum Norðurlöndunum. Hæst er það í Finnlandi, allt að 4%.