Halldór Jörgen Olesen, ritstjóri Verðbólguvaktarinnar, hjólar í Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta í aðsendri grein á Vísi. Bendir hann á að Ólafur Ragnar hafi eitt sinn treyst þjóðinni en nú sé öldin önnur.
„Það er athyglisvert sem stendur efst á ræðumannalista Áfram Ísland, nýrra samtaka sem berjast gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Þar trónir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti. Sami maður og tvisvar synjaði lögum með þeim rökum einum að þjóðin sjálf ætti að fá að ráða,“ segir Halldór Jörgen í greininni.
„Dýrmæt reynsla til að byggja á“
Vísar hann til þess að Ólafur Ragnar hafi árin 2010 og 2011 vísað Icesave löggjöf til þjóðarinnar. Sagði hann í heimspressunni að íslenska þjóðin hefði talað skýrt tvisvar „í samræmi við þá lýðræðishefð sem er mikilvægasta framlag Evrópu til mannkynssögunnar.“ Þjóðaratkvæðin væru dýrmæt reynsla til að byggja á í framtíðinni.
„Þetta var hans stóra saga: forsetinn sem þorði að treysta fólkinu þegar allir aðrir vildu ákveða fyrir það,“ segir Halldór Jörgen. „Fimmtán árum síðar stendur nákvæmlega sami maður fremstur í flokki hreyfingar sem hefur það eitt að markmiði að þjóðin fái ekki að greiða atkvæði.“
Bendir Halldór Jörgen á að atkvæðagreiðslan snúist ekki um aðild að Evrópusambandinu heldur hvort að ljúka eigi viðræðum og sjá fullbúinn samning. Full aðild krefjist annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu og stjórnarskrárbreytingar.
„Þjóðin er ekki að fá að ákveða hvort við göngum inn, hún er bara að fá að ákveða hvort hún fái að sjá samning. Og jafnvel það er of mikið lýðræði fyrir Áfram Ísland,“ segir Halldór Jörgen. „Þá vaknar spurningin sem enginn í þeim herbúðum vill svara: hvað breyttist? Hvers vegna mátti þjóðin ákveða örlög sín þegar málið hét Icesave, en ekki þegar það heitir Evrópa?“
Hallur undir Rússland og Kína
Bendir Halldór Jörgen á að Ólafur Ragnar hafi lengi verið andstæðingur Evrópusambandsins. Hann hafi frekar verið hallur undir Rússland og Kína.
„Það er hans réttur. Menn mega vera á móti aðild,“ segir Halldór Jörgen. „En hér liggur kjarni málsins. Áfram Ísland segir ekki: „Við erum á móti aðild, greiðum atkvæði gegn henni.“ Það væri heiðarleg afstaða. Áfram Ísland segir: „Þjóðin á ekki að fá að greiða atkvæði yfirleitt.“ Það er allt annað mál. Það er ekki afstaða til Evrópu en það er afstaða til lýðræðis.“
Eigin hentisemi
Að lokum segir Halldór Jörgen það afar lýsandi fyrir Ólaf Ragnar að vera efstan á blaði ræðumanna hjá Áfram Ísland.
„Þetta er saga um mann sem trúði á þjóðina, nákvæmlega svo lengi sem hann var viss um að hún væri sammála honum,“ segir hann. „Þjóðin á betra skilið en það. Hún á skilið að fá að sjá samninginn.“