Fréttir

Sár yfir því að hafa ekki verið boðuð á fund með Kristrúnu - „Grundvallaratriði í lýðræðislegri stjórnsýslu“

Mynd
Kristrún Frostadóttir, DV/KSJ

Bæjarfulltrúar úr minnihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja lýstu á fundi bæjarstjórnarinnar á miðvikudag yfir sérstökum vonbrigðum yfir að hafa ekki verið boðaðir á fund sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar úr meirihlutanum áttu með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra. Telja bæjarfulltrúarinnar það ólýðræðislegt að þeir hafi ekki fengið tækifæri til að ræða málefni bæjarins milliliðalaust við ráðherrann. Meirihlutinn ber hins vegar við litlum fyrirvara.

Kristrún heimsótti Vestmannaeyjar þann 26. júní síðastliðinn. Heimsóknarinnar er ekki getið á heimasíðu bæjarins eða Facebook-síðu hans en í tilkynningu sem birt var á heimasíðu forsætisráðuneytisins,1. júlí sama dag og áðurnefndur bæjarstjórnarfundur fór fram í Eyjum, segir að Kristrún hafi á ferð sinni um bæinn kynnt sér uppbyggingu landeldis og hitt fulltrúa Eyjaganga og kynnt sér stöðu tilraunaborana fyrir jarðgöngum á milli lands og Eyja. 

Einnig hafi Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, fulltrúar í bæjarstjórn og hafnarstjóri kynnt fyrir forsætisráðherra áætlanir um byggingu viðlegukants norðan megin við Eiði sem muni stórbæta aðstöðu til móttöku stórskipa í Eyjum.

Ekki allir með

Ljóst er þó miðað við viðbrögð tveggja bæjarfulltrúa Eyjalistans, sem eru í minnihluta ásamt tveimur fulltrúum Miðflokksins, að ekki hafi verið reynt að boða alla bæjarfulltrúa í Vestmannaeyjum á fundinn með Kristrúnu. 

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór yfir fundinn ásamt fleiri málum á fundi bæjarstjórnar á miðvikudag en í kjölfarið lögðu bæjarfulltrúar Eyjalistans, Anton Örn Björnsson og Arndís María Kjartansdóttir fram eftirfarandi bókun:

„Bæjarfulltrúar Eyjalistans lýsa yfir miklum vonbrigðum með það vinnulag sem viðhaft var við heimsókn forsætisráðherra til Vestmannaeyja þann 26. júní síðastliðinn, þar sem fulltrúar listans voru ekki boðaðir til fundarins. Það er grundvallaratriði í lýðræðislegri stjórnsýslu og góðum stjórnunarháttum að allir kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn, óháð meiri- eða minnihlutastöðu, fái jöfn tækifæri til að koma sjónarmiðum samfélagsins á framfæri þegar æðstu ráðamenn þjóðarinnar sækja okkur heim.“

Fyrirvari

Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm bæjarfulltrúa og þar með hreinan meirihluta í bæjarstjórn Vestmannaeyja í kosningunum í maí. Hluti þeirra var viðstaddur fundinn með Kristrúnu en í kjölfar bókunar Eyjalistans var gert fundarhlé svo fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gætu komið sér saman um svar. 

Í bókun Sjálfstæðismanna segir að að skrifstofa forsætisráðherra hafi óskað eftir fundi með bæjarstjóra Vestmannaeyja vegna atvinnuvegastefnu fyrir Ísland. Þegar ráðamenn komi með stuttum fyrirvara sé formaður bæjarráðs (Eyþór Harðarson), forseti bæjarstjórnar (Hildur Sólveig Sigurðardóttir) og í þessu tilfelli formaður framkvæmda- og hafnarráðs (Hannes Kristinn Sigurðsson) boðaðir á fundinn, enda hafi verið m.a. rætt um stórskipakant, Eyjagöng og landeldisfyrirtækið Laxey heimsótt.

Raunar er Hannes Kristinn formaður framkvæmda- og hafnarráðs varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Segir að lokum í bókun Sjálfstæðismanna að þegar fundir séu á vegum Vestmannaeyjabæjar séu að sjálfsögðu allir bæjarfulltrúar sérstaklega boðaðir. Þykir bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins leitt að þetta sé upplifun Eyjalistans.