Eins og greint var frá í fréttum í vikunni varð hörmulegur atburður síðastliðinn sunnudag er kona féll fram af svölum í húsnæði Eir hjúkrunarheimilis í Grafarvogi og lést. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og innan embættis landlæknis. Eir er einnig með öryggismál sín í athugun.
Í viðtölum við fjölmiðla sagði Eybjörg Hauksdóttir, forstjóri Eir, að um hörmulegt slys hafi verið að ræða og hún viti ekki til þess að annað eins hafi gerst á hjúkrunarheimilinu.
Það kann að vera rétt, hvað Eir snertir, en atburður af þessu tagi er samt ekki einsdæmi á hjúkrunarheimilum. Fyrir nokkrum árum fleygði kona sér út um glugga á þjónustuíbúð í Sóltúni í Reykjavík. Yngri systir konunnar hafði samband við DV og greindi frá þessu núna í vikunni. Segir hún að gluggar íbúðarinnar þar sem systir hennar bjó hafi verið svo óheppilega hannaðir að hægt var að opna þá upp á gátt.
„Hún var með alvarlegan heilasjúkdóm og kastaði sér út um glugga á þriðju hæð. Hún vildi flýja og komast heim. Sem betur fer lifði hún slysið af, en það var bara heppni, það munaði bara nokkrum skrefum að hún félli á steinsteypu en ekki mjúka mold, eins og raunin varð. Hún slasaðist mjög alvarlega. Opnanlegum gluggum var síðan breytt eftir þetta en þá var það bara orðið of seint fyrir systur mína.“
Segir konan það augljóslega afar óheppilega hönnun að hægt sé að opna glugga upp á gátt.
„Hún var með þennan alvarlega sjúkdóm. Ég er samt ekki að segja að hún hafi átt að vera í einhverju fangelsi, ég vil auðvitað að fólk fái að lifa eins eðlilegu lífi og mögulegt er. En ég bý sjálf í venjulegri íbúð í Vesturbænum og ekki gæti ég kastaði mér út um gluggana hérna því ég get ekki galopnað þá,“ segir konan.
Systir konunnar lifði slysið af en lést fyrir þremur árum. „Hún náði sér aldrei líkamlega eftir þetta slys. Ofan á andlega sjúkdóminn þá varð þetta dropinn sem fyllti mælinn,“ segir konan.
Öryggismál verða að vera í lagi
„Þetta er viðkvæmt mál í fjölskyldunni en mér finnst bara mikilvægt að koma þessu á framfæri svo aðstandendur íbúa á hjúkrunarheimilum hafi varann á sér. Öryggismál á þessum stofnunum verða að vera í lagi,“ segir konan ennfremur og kýs að koma ekki fram undir nafni vegna persónuverndar systur hennar og annarra aðstandenda.
„Ég vil vekja athygli fólks á því að hjúkrunarheimili eru alls ekki öruggir staðir. Nógu langir eru biðlistarnir og það er hreint ekki ókeypis að búa á þessum stofnunum. Nú finnst mér í ljósi þessa hörmulega atburðar á Eir að hjúkrunarheimili þurfi að skoða stöðuna vel. Áður en ég fer á hjúkrunarheimili í ellinni þarf ég að vera viss um að öryggi mitt sé tryggt. Annars verð ég bara hérna heima.“
Atvikið leiddi til breytinga á gluggaumbúnaði
DV óskaði eftir upplýsingum hjá Sóltúni um atvikið. Ingibjörg Eyþórsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs, staðfestir að atvik hafi komið upp sem leiddi til breytinga á gluggaumbúnaði:
„Varðandi fyrirspurn þína um atvik á Sóltúni fyrir nokkrum árum þá get ég staðfest að það varð atvik sem leiddi til breytinga á gluggaumbúnaði í kjölfarið og uppfyllir hjúkrunarheimilið allar öryggiskröfur.
Annars hvað varðar einstök mál sem upp koma verðum við að vísa því til Landlæknisembættisins sem hefur eftirlit með málum sem þessum.“