Dyravörður á veitinga- og skemmtistað í Vestmannaeyjum var sviptur starfsleyfi vegna rannsóknar og síðan ákæru á hendur honum fyrir líkamsárás. Hann krafðist þess að ákærunni yrði vísað frá dómi á þeim forsendum að ákærandinn, Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum, Arndís Bára Ingimarsdóttir, væri vanhæf í málinu. Héraðsdómur Suðurlands varð við þeirri kröfu og vísaði málinu frá dómi en Landsréttur hefur nú snúið þeim úrskurði við og sett fyrir Héraðsdóm að taka málið til efnislegrar meðferðar.
Samkvæmt ákæru var dyraverðinum gefið að sök að hafa aðfaranótt 27. apríl 2024, þegar hann starfaði sem dyravörður við skemmtistað, veist að manni, slegið hann í höfuðið, tekið um háls hans og ýtt honum niður í jörðina með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut sprungna vör.
Áður en ákæra var gefin út hafði lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum ákveðið að afturkalla leyfi mannsins til að starfa sem dyravörður. Sú ákvörðun byggðist á því að hann sætti rannsókn vegna meints ofbeldisbrots. Í rökstuðningi lögreglustjóra kom meðal annars fram að aðilar sem sættu rannsókn eða hefðu gerst sekir um ofbeldisbrot uppfylltu ekki hæfisskilyrði til starfa sem dyraverðir. Maðurinn kærði þessa stjórnsýsluákvörðun til ráðherra og hélt því fram að bæði lagastoð og málsmeðferð ákvörðunarinnar brytu gegn stjórnsýslulögum.
Maðurinn byggði kröfur sína á því að við ákvörðunina um að svipta hann starfsleyfi hefði lögreglustjórinn brotið gróflega gegn réttindum hans og með ummælum sínum um framgöngu hans hefði hún vegið að honum og brotið gegn þeirri meginreglu að maður teljist saklaus uns sekt hans er sönnuð. Ákvörðunin um afturköllun leyfis ákærða til dyravörslu hafi verið tekin af þáverandi aðstoðarsaksóknara lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, Arndísi Báru Ingimarsdóttur, sem sé nú settur lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og gefið hafi út ákæru í málinu á hendur honum.
Taldi manninn hafa verið sviptan starfsleyfi of snemma
Héraðsdómur taldi að ummæli lögreglustjórans og meðferð stjórnsýslumálsins gæfu dyraverðinum réttmæta ástæðu til að draga óhlutdrægni embættisins í efa. Dómurinn lagði meðal annars áherslu á að ákvörðun um sviptingu starfsréttinda hefði verið tekin áður en skýrslur höfðu verið teknar af öllum lykilaðilum málsins og að lögmæti þeirrar ákvörðunar væri enn til endurskoðunar hjá ráðherra. Þótt ekkert benti til þess að rannsókn eða saksókn hefði í reynd verið hlutdræg taldi dómurinn að aðstæður væru þess eðlis að þær gætu með réttu vakið efasemdir um óhlutdrægni lögreglustjóra samkvæmt g-lið 1. mgr. 6. gr. laga um meðferð sakamála. Ákærunni var því vísað frá dómi og allur sakarkostnaður lagður á ríkissjóð.
Landsréttur snýr úrskurðinum við
Ákæruvaldið kærði úrskurðinn til Landsréttar. Landsréttur tók aðra afstöðu og felldi frávísunarúrskurðinn úr gildi. Rétturinn lagði áherslu á að ákvörðun lögreglustjórans um afturköllun starfsleyfis væri sjálfstætt stjórnsýslumál sem væri ekki til endurskoðunar í sakamálinu. Þar sem kæra vegna þeirrar ákvörðunar hefði ekki enn verið afgreidd af ráðherra gætu málsástæður um meint brot gegn stjórnsýslulögum ekki haft áhrif á mat á hæfi lögreglustjóra í sakamálinu.
Landsréttur taldi jafnframt að það eitt að lögreglustjóri hefði áður tekið stjórnvaldsákvörðun sem varðaði sömu atvik og síðar leiddu til saksóknar skapaði ekki vanhæfi. Þá voru ummæli lögreglustjórans metin í því samhengi að þau vörðuðu almennt mat á hæfi dyravarða en fælu ekki í sér fullyrðingu um sekt viðkomandi manns. Að mati Landsréttar voru því ekki fyrir hendi atvik eða aðstæður sem gætu með réttu vakið efa um óhlutdrægni lögreglustjórans. Niðurstaðan varð því sú að héraðsdómi var gert að taka málið til efnismeðferðar.
Úrskurðina má lesa hér.