Fréttir

Alma segir heilbrigðiskerfið undirbúið fyrir 12. ágúst: „Heilbrigðiskerfið er traust og gott“

Mynd
Alma Möller heilbrigðisráðherra
Alma Möller heilbrigðisráðherra

 „Já, heilbrigðiskerfið er traust og gott og undirbúið fyrir almyrkvann. Vandaður undirbúningur stuðlar enn fremur að því að bjargir verði nægar,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra aðspurð hvort núverandi innviðir heilbrigðis- og neyðarþjónustu séu nægilega öflugir til að mæta þeim fjölda fólks sem búist er við á landinu vegna sólmyrkvans 12. ágúst.

Í viðtali í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er Alma spurð um undirbúning í tengslum við væntanlegt álag á heilbrigðis- og neyðarþjónustu á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi, höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga. Frá þeim svæðum mun almyrkvi á sólu verða sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Þetta er fyrsti almyrkvinn sem sést frá Reykjavík síðan 17. júní 1433.  

„Hlutaðeigandi heilbrigðisstofnanir hafa gert áætlanir um aukna mönnun, breytingar á vaktafyrirkomulagi, staðsetningu sjúkrabíla, samstarf við björgunarsveitir og fleira. Þá eru til viðbragðsáætlanir hjá öllum þessum stofnunum við heilbrigðisvá, þar með taldar hópslysaáætlanir, og ef á reynir þá verða þær virkjaðar. Landspítali er jafnframt í viðbragðsstöðu enda alltaf reiðubúinn,“ áréttar Alma.

Læknablaðið hefur fengið staðfest hjá Hjördísi Garðarsdóttur á Neyðarlínunni að mannafli verði aukinn í kringum 12. ágúst, svo svörun símtala við neyð gangi vel fyrir sig.

„Heilbrigðisráðuneytið fylgist grannt með undirbúningi heilbrigðisstofnana og almannavarna vegna myrkvans. Almannavarnir leiða samráðshóp með fulltrúum allra helstu aðila (sveitarfélög, löggæsla, Landhelgisgæsla, Vegagerð, Ferðamálastofa, RKÍ, Neyðarlínan, Náttúruverndarstofnun, ferðaþjónustuaðilar og fleiri)“ segir Alma. Forstjórar heilbrigðisstofnana eigi einnig sæti í hópnum sem hittist reglulega.

Forsætisráðuneytið leiðir jafnframt stýrihóp ráðuneyta heilbrigðis, dómsmála, innviða- og umhverfis, fjármála, efnahags og atvinnuvega. Styrihópurinn mun koma sterkur inn þegar nær dregur með miðlæga upplýsingagjöf til almennings. 

Alma segir að viðbragð vegna sjúkraflutninga af hálfu heilbrigðisstofnana verði aukið og samráð haft við lögreglu og Landhelgisgæslu sem er í samráðshópnum og meti þörf fyrir þyrluviðbragð. „Ég hef auk þessa falið embætti landlæknis að undirbúa leiðbeiningar varðandi verndun augna þegar horft verður til sólar þann 12. ágúst.“