Fréttir

Ferðamaður nefnir það eina sem var ódýrt á Íslandi – „Ég ætla ekki að koma aftur“

Mynd
Ferðamönnum bregður að sjá verðið á Íslandi.

Bandarískur ferðamaður segir Ísland hafa verið mun dýrara en hann átti von á, sérstaklega maturinn. Aðeins eitt hafi verið tiltölulega ódýrt. Honum segist hafa líkað landið en ætlar sér ekki að koma aftur.

„Landið var fallegt en dýrara en ég hafði gert mér grein fyrir,“ segir ferðamaðurinn í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit.

Maturinn rándýr

Einkum hafi það verið maturinn sem hafi verið dýr. Og ekki aðeins fínn matur á veitingastöðum heldur allur matur. Sem dæmi hafi tvær pylsur á bensínstöð og gosdrykkur kostað tæplega 20 dollara, það er rúmlega 2500 krónur.

„Allt kjöt er mjög dýrt,“ segir ferðamaðurinn. „Lamb og kjúklingur kostaði 30 dollara kílóið í Bónus. Það er enginn ferskur fiskur í matvörubúðum þannig að ég geri ráð fyrir að hann sé að mestu fluttur út. Fiskur í dós var á 3 dollara fyrir nokkur grömm. 10 egg kostuðu 7 dollara.“

Verst hafi hins vegar verið að fara út að borða.

Sjá einnig:

Bandarískur ferðamaður sýndi hvað 7 daga frí á Íslandi kostaði hana

„Að fara út að borða var ruddalega dýrt. Þú þarft að eyða 50 eða 60 dollurum fyrir einn disk með kjöti og grænmeti. 30 dollurum fyrir meðalstóra pizzu. Við borguðum 30 dollara fyrir lambasúpu á bístrói en hún var aðallega kjötsoð,“ segir ferðamaðurinn. „Tveir bitar á KFC kosta meira en 20 dollara.“

Það eina ódýra

Annað sem sé ákaflega dýrt á Íslandi sé gistingin. Jafn vel tjaldstæðin séu dýr. Nefnir ferðamaðurinn að hafa þurft að borga 30 dollara á mann fyrir tjaldstæði. Sturtu, þvotta og eldhúsaðstaða hafi sums staðar einnig kostað sitt. Til að mynda hafi það kostað 15 dollara að þvo eina vél og 10 dollara að setja í þurrkarann.

„Við fórum í baðlón en það er ekki þess virði,“ segir ferðamaðurinn. Þá nefnir hann það eina sem hafi verið tiltölulega ódýrt. Það er almenningssundlaugarnar. „Almenningssundlaugarnar voru viðráðanlegar. Um 10 dollarar á haus og meira að segja ókeypis kaffi,“ segir hann.

Kemur ekki aftur

Varar hann aðra ferðamenn við og segir að þeir skuli vera undirbúnir fyrir kostnaðinn. Það hafi komið honum sérstaklega á óvart hversu dýr maturinn er á Íslandi og eftir allar göngurnar verður maður mjög svangur.

„Mér líkaði við landið en ég ætla ekki að koma aftur,“ segir hann að lokum.