Hælisleitendur í Bretlandi verða krafðir um að endurgreiðslu fyrir húsnæði og fjárhagsstuðning sem þeir fá ef frumvarp bresku ríkisstjórnarinnar verður að lögum. Munu þeir þurfa að greiða allt að 10 þúsund pund eða tæpar 1,7 milljónir króna, þegar þeir eru farnir að hafa tekjur.
Frumvarpið var lagt fram af Shabana Mahmood innanríkisráðherra á mánudag og tekur það mið af námslánakerfinu. Ekki er búið að útfæra hvaða hælisleitendur þurfa að greiða þessa upphæð eða hvaða tekjur er miðað við. Allir fullorðnir hælisleitendur koma til með að greiða upp þessa upphæð með mánaðarlegum afborgunum.
Independent segir frá gagnrýni frá ýmsum mannréttinda- og hjálparsamtökum á frumvarpið sem benda á að ekki sé tekist á við langan biðtíma sem sé ástæðan fyrir því að svo margir þurfa að dvelja lengi í húsnæði á vegum hins opinbera.
Imran Hussain frá breska flóttamannaráðinu segir þetta vera sértækan skatt á hælisleitendur. Þá segir Zoe Dexter hjá Helen Bamber-stofnuninni að þetta muni hægja á inngildingu. „Að setja á þau fjárhagslega byrgði þegar þau eru að byggja líf sitt upp á nýtt er mjög óréttlátt og grefur undan tilganginum.“
Hælisleitendur í Bretlandi mega ekki vinna á meðan þeir eru að bíða eftir að vita hvort þeir fái hæli í landinu, þurfa þeir því að dvelja í húsnæði frá hinu opinbera. Samkvæmt tölum IPPR kostar um 41 þúsund pund, eða 6,8 milljónir króna, á ári að styðja við hvern hælisleitanda. Heildarkostnaður breska ríkisins í fyrra nam um 4 milljörðum punda eða tæpum 668 milljörðum króna.
Mahmood segir kostnaðinn of mikinn. „Við erum búin að ná að lækka kostnaðinn um einn milljarð punda og við teljum rétt að við biðjum alla um að taka þátt í kostnaðinum. Það er réttur að fá að sækja um hæli en því fylgir líka ábyrgð. Þegar þau geta viljum við að þau endurgreiði breskum almenningi.“