Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það vera sjálfseyðandi stefnu að taka á móti fólki frá Miðausturlöndum og setja þeim ekki skýran ramma hvað líðst í íslensku samfélagi.
Diljá Mist var gestur í hlaðvarpinu Ein pæling þar sem hún ræddi meðal annars um útlendingamál.
„Við höfum aldrei verið hrædd við ummæli á Facebook. Það hefur verið hrækt á okkur úti á götum. Ég hef þurft að blokka hundruð manna vegna stöðugs áreitis í minn garð út af útlendingamálum, meðal annars vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs,“ sagði Diljá Mist. Sakaði hún ríkisstjórnarflokkana um hræsni fyrir að hafa gagnrýnt útlendingastefnu Sjálfstæðisflokksins á síðustu kjörtímabilum en samþykkja nú brottfararstöð.
Hræðilegir kuflar í steikjandi hita
Hún rifjar upp minningar úr æsku sem snúa að körlum frá Miðausturlöndum.
„Ég man eftir mér, svo lítilli, að vera með fjölskyldunni minni erlendis í fríi, í steikjandi hita, og fylgjast með karlmönnum frá Miðausturlöndum svamla í sundlauginni á sundskýlunum, en konunum í þessum hræðilegu kuflum standandi við laugina og reyna að vera í skugga. Og allt niður í litlar stelpur. Þetta er viðurstyggilegt,“ sagði hún.
„Þeir sem halda því fram að þetta sé eitthvað frjálst form af tjáningu og að maður sé í mótsögn við sjálfan sig ef maður talar fyrir kvenréttindum eða tjáningarfrelsi en vilji banna fólki hvernig það klæðir sig, þetta er einhver grundvallarmisskilningur á því hvernig konur hafa það í þessum heimshlutum.“
Setur hún þetta í samhengi við hvernig Ísland tekur við fólki frá þessum heimshluta.
„Að ætla að taka síðan við hópi fólks frá þessum heimshlutum og setja þeim ekki skýrar reglur og ramma varðandi það hvað líðst í okkar samfélagi, það finnst mér bara vera sjálfseyðandi stefna.“
Ætti að vera forgangsmál hjá hinseginsamfélaginu
Hún furðar sig á hinseginsamfélaginu á Íslandi. „Mér finnst það alveg ótrúlegur sofandaháttur þegar kemur að því að hingað hafa flust þúsundir einstaklingar sem koma frá löndum þar sem hinseginsamfélag, og hinsegin einstaklingar, á ekki tilvistarrétt,“ sagði hún.
„Það er ekki verið að tala um misskiptingu á gæðum eða réttindum, það eru bara ekki tilvistarréttur. Mér finnst hinseginsamfélagið mjög sofandi gagnvart þessu. Það hefur tekið okkar samfélag svo langan tíma að komast á þann stað sem við erum í dag gagnvart hinseginsamfélaginu. Hvernig ætlar þú að kippa fólki aftur úr fornöld, í þessum efnum, bara inn í nútímann á Íslandi. Þetta ætti að vera algjört forgangsmál hjá hinseginssamfélaginu.“