Fréttir

Burnham boðar nýja tíma: „Nr. 10 Norður verður miðpunktur“

Mynd
Andy Burnham í dag. Mynd/Getty

Andy Burnham ætlar að leiða tíu ára verkefni til að auka lífsgæði í Bretlandi og ætlar að gera útibú fyrir embætti forsætisráðherra í Manchester. Þetta er meðal þess sem kom fram í ávarpi hans í Manchester í dag. 

Fátt kemur í veg fyrir að Burnham verði útnefndur nýr leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands í næsta mánuði í stað Keir Starmer, er búist við því að hann taki formlega við 20. júlí nema einhver bjóði sig óvænt fram á móti honum. 

„Við ætlum að láta stjórnmálin vinna fyrir þig og þar sem þú býrð. Til að láta það gerast munum við ráðast í stærstu breytingar á valdafyrirkomulagi sem hefur sést í landinu,“ sagði hann. Burnham var áður borgarstjóri Manchester, hyggst hann ekki yfirgefa borgina fyrir 10 Downingsstræti að öllu leyti. „Nr. 10 Norður verður miðpunktur af endurteiknuðu Bretlandi.“

Þá ætlar hann að setja á laggirnar sjóði til að koma iðnaði af stað og einnig „mestu uppbyggingu á félagslegu húsnæði frá stríðslokum“. Þá verði vald sveitarfélaga aukið til muna. 

Burnham boðaði einnig niðurskurð í velferðarmálum, hann fór ekki út í nánari útlistun en gaf til kynna að sveitarfélög myndu hafa meira að segja þegar kæmi að atvinnumálum. 

Margir gagnrýna Burnham og segja hann ekki ganga nógu langt, þar á meðal Jeremy Corbyn, fyrrverandi formaður Verkamannaflokksins. „Við munum aldrei ná fram alvöru breytingum nema með því að dreifa fjármunum, eignarhaldi og valdi. Þjóðnýting, skattur á hina ríku og leiguþak, það er grunnur að nýrri stefnu,“ sagði Corbyn á X í kjölfar ávarps Burnham. „Starmer fór á eftir hinum veiku og fötluðu til að fjármagna stríðsrekstur. Að endurtaka það yrðu hræðileg mistök.“

Kemi Badenoch, leiðtogi Íhaldsflokksins, segist hafa heyrt þetta allt áður. Robert Jenrick í Reform UK segir að Burnham sé strax að biðja fólk um að bíða. „Fólk vill ekki bíða í tíu ár, það vill sjá róttækar breytingar strax,“ sagði Jenrick.

Dave Doogan, þingflokksformaður SNP, Skoska þjóðarflokksins, segir þetta innantóm loforð. „Andy Burnham er bara með sömu innantómu loforðin og heldur í sömu stefnuna – Brexit, niðurskurður og ríkisfjármál undir forskrift íhaldsins.“