Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands þar sem erfðaskrá konu sem lést árið 2024 var dæmd ógild, en talið var að konuna hefði skort arfleiðsluhæfi við gerð erfðaskrárinnar. Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar sem féll í gær.
Hin látna átti tvö börn en annað þeirra lést á undan móður sinni. Aðilar málsins voru því dóttir hinnar látnu og tvær sonardætur hennar. Dóttirin og sonardæturnar tvær greindu allar frá góðu og innilegu sambandi við hina látnu.
Flutti á hjúkrunarheimili
Aldraða konan flutti á hjúkrunarheimili í október árið 2023 en hún var þá á tíðræðisaldri og hafði dvalið á sjúkrahúsi í um mánuði vegna slappleika. Hún þótti nokkuð óáttuð þegar hún flutti á hjúkrunarheimilið og rúmu hálfi ári síðan hlaut hún aðeins 15 stig af 30 á minnisprófi en telst það talsverð vitræn skerðing. Var hún svo svipt fjárræði sumarið 2024 en gat þá ekki komið sjálf í dómsal þar sem hún þótti ekki til þess bær. Þegar mál til sviptingar fjárræðis var rekið hjá dómstólum bar læknir vitni og lýsti því að þó sú gamla hefði ekki verið greind með heilabilun bentu minnispróf til töluverðrar skerðingar. Nefndi hann sem dæmi að konan gæti ekki skrifað eina setningu og ekki fylgt fyrirmælum um að loka augunum. Dómari ákvað að ræða sjálfur við konuna og taldi augljóst að hún bæri ekki nokkuð skynbragð á fjárhag sinn og virtist ekkert vita hvers konar mál var verið að reka gegn henni. Hún væri óhæf til að stýra fjármálum sínum.
Erfðaskrána hafði konan gert árinu áður, eða í maí árið 2023. Þar lýsti hún yfir þeim vilja sínum að ráðstafa þriðjungi eigna sinna til dóttur sinnar. Eins vildi hún að fasteign í hennar eigu yrði að séreign dótturinnar og að dótturdóttir hennar fengi að ráðstafa innbúi til ættingja eftir því sem við ætti. Hin látna átti nokkur verðmæti í fasteignum en þegar hún lést var ekki mikið eftir inni á bankabók hennar.
Þegar málið til ógildingar á erfðaskrá var rekið hjá Héraðsdómi Vesturlands var fengið bæði undir- og yfirmat. Undirmatsmaður taldi að hin látna hefði verið bær til þess að ráðstafa eignum sínum með erfðaskrá í maí árið 2023 þegar erfðaskráin var undirrituð. Yfirmatsmenn voru á öðru máli en þeir töldu sjúkragögn gefa til kynna með óyggjandi hætti að konan glímdi við heilabilun sem hafi orðin það mikil þegar erfðaskráin var gerð að efast mætti um það hvort konan hefði verið hæf til löggerningsins.
Töldu dótturdótturina hafa misfarið með fé ömmu þeirra
Það voru sonardæturnar sem fóru fram á að erfðaskráin yrði dæmd ógild og stefndu því föðursystur sinni. Tóku þær fram að amma þeirra hefði alla tíð lagt áherslu á að gera ekki upp á milli barna og barnabarna. Margt væri furðulegt við erfðaskrána og ýmislegt benti til þess að það hafi verið dótturdóttir hinnar látnu sem stóð á bak við þetta allt. Til dæmis væru vottar að erfðaskránni tveir lögmenn sem væru gamlir skólafélagar og vinir dótturdótturinnar. Orðalagið í erfðaskrá væri ekki í anda ömmunnar og eins þótti sonardætrunum grunsamlegt að erfðaskránni hafi ekki skilað sér til sýslumanns fyrr en í maí árið 2024, eða um ári eftir að hún átti að hafa verið gerð. Eina dagsetningin sem komi fram í skjalinu sé handskrifuð.
Lýstu þær einnig grun sínum um að dótturdóttirin hefði freklega gengið á eignir ömmunnar árum saman. Hún hafi millifært megnið af innistæðum ömmunnar á bankareikningi yfir á sinn eigin reikning og þegar amman fór á hjúkrunarheimili hafi dótturdóttirin flutt inn á heimili ömmunnar og aldrei greitt fyrir það krónu. Þar hafi dótturdóttirin gengið mjög illa um og sýnt eigum ömmunnar vanvirðingu.
Dóttir konunnar tók til varna í málinu og lýsti því að móðir hennar hefði verið fullfær um að ráðstafa eignum sínum með erfðaskrá. Þetta hafi hún gert af fúsum og frjálsum vilja og hafi vilji hennar staðið til þess árum saman áður en hún lét til skarar skríða. Við gerð erfðaskrárinnar hafi hún notið lögfræðilegrar aðstoðar.
Dómari í Héraðsdómi Vesturlands komst að þeirri niðurstöðu að erfðaskráin væri ógild þar sem hin látna hefði ekki verið bær til að gera erfðaskrá í maí árið 2023 vegna heilabilunar. Hann rakti þó sérstaklega að ýmislegt annað væri athugavert við erfðaskrána, svo sem að lögfróðir vinir dótturdótturinnar hafi samið skjalið og vottað það. Þessir lögmenn hefðu átt að vita hvernig gera skal erfðaskrá og votta í samræmi við lög en töluvert vantaði upp á að góðum venjum hafi verið fylgt í málinu. Hefðu þeir meðal annars haft fulla ástæðu til að kanna hvort að hin látna, sem var á tíræðisaldri og glímdi við nokkurn heilsubrest, þekkti efni erfðaskrárinnar og að þar væri að finna hennar hinsta vilja, enda hefðu lögmennirnir aldrei hitt hana áður. Þeir hefðu átt að sýna sérstaka aðgæslu þar sem hin látna var á tíræðisaldri og eins vegna vinatengsla þeirra við barnabarn hennar sem hafði beinna hagsmuna að gæta af efni erfðaskrárinnar.
Vísaði dómari eins til þess að vitni hefði lýst því fyrir dómi að þegar sonardæturnar komu á heimili hinnar látnu, þar sem dótturdóttirin hafði gert sig heimakomna, hafi dóttirin hreytt því í frænkur sínar að „þær systur ættu eftir að komast að því hvað hún lögfræðimenntuð hafi gert varðandi dánarbúið og það ætti eftir að koma í ljós.“
Tók dómari eins undir með sonardætrunum að það væri grunsamlegt að það hafi tekið ár fyrir erfðaskrána að skila sér til sýslumanns og að dótturdóttirin hefði millifært megnið af fjárinnistæðum ömmu sinnar inn á sjálfa sig fyrir andlátið.
Landsréttur hefur nú staðfest niðurstöðuna, en dóttirin hafði fyrir Landsrétti reynt að draga úr vægi matsgerðar yfirmatsmanna með vísan til þess að ruglingur hafi orðið á tilteknum dagsetningum í sjúkraskrá. Landsréttur rakti þó að yfirmatsmenn hefðu vandað vinnu sína og því gæti þessi ruglingur með engu skákað matinu.
Erfðaskráin er því ógild og miðað við erfðalög fær dóttirin því helming eigna dánarbúsins og sonardæturnar skipta hinum helmingnum á milli sín, en það er arfshluti föður þeirra sem er látinn.