Fréttir

Kristján segir Íslandsbanka tala niður til eldri borgara í markpósti - „Ég er ekki sex ára“

Mynd

Kristjáni Logasyni barst í vikunni markpóstur frá Íslandsbanka sem kom honum nokkuð á óvart. Þar var eldri viðskiptavinum boðið að koma í svokallað tæknikaffi til að læra á tæknina, eins og hvernig maður setur upp smáforrit, skráir sig inn í netbanka og hvernig hægt er að nota snjalltæki til að sinna bankaviðskiptum. Kristján telur að þarna sé bankinn að tala niður til þeirra sem eldri eru, enda gangi markpósturinn út frá því að eldri borgarar kunni ekki að nýta sér tæknina. Varð Kristjáni svo mikið um að hann ákvað að svara markpóstinum með skoðanagrein sem birtist hjá Vísi í dag þar sem hann tilkynnir bankanum: „ég er ekki 6 ára“.

„Satt að segja ætlaði ég ekki að trúa því að þessu væri beint til mín og ég ætla rétt að vona að móðir mín, rúmlega áttræð, hafi ekki lesið þetta, því henni myndi svelgjast á kaffinu á milli þess sem hún skrollaði í símanum sínum.

Íslandsbanki ætti kannski að bjóða móður minni í heimsókn og kaffi svo þeir geti lært hvernig á að tala við fólk. Hvernig á að búa til markaðsefni sem talar ekki niður til fólks og hvernig á að koma fram við aldraða, enda móðir mín með yfir 50 ára reynslu í textagerð, auglýsinga- og markaðsmálum. Hún gæti mjög líklega kennt því unga fólki, sem finnst þessi texti sniðugur, ýmislegt, m.a. um það hvernig á að nota tölvur til að skrifa texta.

Sem betur fer er hugbúnaðarverkfræðingurinn hann faðir minn ekki viðskiptavinur Íslandsbanka. Hann hefði getað fengið hjartaáfall af reiði yfir því hvernig þetta bréf var orðað.“

Orðalagið fannst Kristáni svo undarlegt að það hvarflaði að honum að textinn hefði verið saminn af gervigreind. Hann rekur að hans kynslóð hafi alist upp við töluverðar breytingar hvað tæknina varðar og ætti Íslandsbanki að hafa það í huga næst þegar svona markpóstur er sendur út að þær kynslóðir sem eru komnar yfir sextugt séu sennilega mun færari hvað tæknina varðar en flestir starfsmenn bankans, enda séu það kynslóðirnar sem byggðu tæknina upp.

„Best væri ef Íslandsbanki og starfsmenn hans myndu muna að þó þú verðir sextugur þá dettur heilinn ekki úr sambandi og þú getur enn leyst ýmis verkefni, jafnvel svo flókin að nota illa hannaðan heimabanka. Það er nefnilega ekkert að heilabúi flestra þeirra sem eru komnir yfir sextugt, en ef svo er, að einhverjum þyki heimabankinn í símanum flókinn, þá er vandamálið hönnun hans, ekki heili fólks. Sem notandi heimabankans síðan hann komst á laggirnar veit ég að nýjasta uppfærslan er langt því frá að vera nógu góð eða notendavæn.

Til Íslandsbanka sendi ég því þetta gamla góða heilræði: „Líttu þér nær.“

Loks ákvað Kristján að senda markpóstinn til gervigreindarinnar og sjá hvað hún hefði um þetta að segja. Gervigreindin taldi að þótt textinn væri skýr og kurteis þá sé þar beinlínis gert ráð fyrir að einstaklingar sem ekki hafa beðið um tækniaðstoð þurfi hjálp við að nota netbanka, smáforrit og annað. Textann mætti því auðveldlega skilja sem svo að verið sé að tala niður til markhópsins. Pósturinn geri ráð fyrir vanþekkingu.

Í póstinum frá Íslandsbanka sagði meðal annars: „Tækninni fleygir fram og stundum er gott að fá smá aðstoð. Okkur langar því að bjóða þér í Tæknikaffi [dagsetning] þar sem við förum yfir notkun Íslandsbankaappsins og netbankans og aðstoðum þig við það sem þú vilt ná betri tökum á. Við getum til dæmis aðstoðað við uppsetningu og innskráningu í appið og netbankann og sýnt þér hvernig hægt er að nýta tækin til að sinna bankaviðskiptum á borð við millifærslur, greiðslu reikninga og fá yfirsýn yfir kortaviðskipti. Við ætlum að hittast í [staðsetning] og þar verður boðið upp á kaffi, vöfflur og gott spjall.“

Undir greininni segir „Höfundur er 60+ en ekki 6 ára.“