Fréttir

Fangaverðir héldu rastamanni niður og klipptu af honum dreddana

Mynd
Trúfrelsi rastamannsins var ekki virt.

Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur staðfest úrskurð lægri dómstóls um að rastamaður geti ekki kært starfsfólk fangelsis sem klippti af honum dredda. Vildi rastamaðurinn fá bætur enda er hárgreiðslan trúarleg.

Rastamaðurinn, Damon Landor, fékk höfnun síðastliðinn þriðjudag frá hæstarétti Bandaríkjanna, eins og segir í frétt Al Jazeera um málið. Vildi hann fá bætur frá fangelsi fyrir að brjóta á trúfelsi hans.

Rastafaríanismi eru trúarbrögð, náskyld kristni, sem urðu til á eyjunni Jamaíku á fyrri hluta síðustu aldar. Töldu iðkendurnir að Hailie Selassie I Eþíópíukeisari, með fæðingarnafnið Ras Tafari, væri helgur spámaður.

Talið er að allt að ein milljón manns iðki trúarbrögðin, en frægasti rastamaður sögunnar er án vafa tónlistarmaðurinn Bob Marley. Partur af trúnni er að borða sérstakt grænmetisfæði, reykja kannabis og safna síðum fléttingum, dreddum, í hárið.

Þvinguð klipping

Landor dvaldi í fangelsi í Louisiana fylki í fimm mánuði árið 2020. Þegar hann steig inn í fangelsið tók hann með sér útprentaðan úrskurð frá árinu 2017 um að klippingar á dreddum í fangelsum séu brot á trúfrelsi fanga. En fangaverðirnir í Raymond Laborde fangelsinu köstuðu því í ruslið og klipptu dreddana af honum. Tveir þeirra héldu honum niðri á meðan sá þriðji klippti hann og rakaði höfuðið.

„Ég er vonsvikinn en ekki sigraður,“ sagði Landor. „Það sem kom fyrir mig var brot á minni trú og minni reisn. Ég mun halda áfram að leitast eftir því að einhver verði dreginn til ábyrgðar. Það sem kom fyrir mig má ekki koma fyrir neinn aftur.“