Fréttir

Drap ung systkini með eitruðum páskaeggjum – Afbrýðisöm vegna skilnaðar

Mynd
Barbosa var afbrýðisöm út í nýju kærustu síns fyrrverandi.

Brasilísk kona hefur verið dæmd til 66 ára fangelsis fyrir morð á tveimur stjúpbörnum fyrrverandi eiginmanns síns. Konan eitraði páskaegg páskaegg barnanna í afbrýðisemiskasti yfir því hvernig hjónabandið endaði.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.

Hin 35 ára Jordelia Pereira Barbosa hlaut 66 ára fangelsisdóm í heimalandi sínu Brasilíu fyrir morð á tveimur systkinum. Það er hinum 7 ára gamla Luiz Fernando Rocha Silva og hinni 13 ára Evillyn Fernanda Rocha Silva.

Börnin dóu í apríl mánuði árið 2025 eftir að hafa bitið í páskaegg sem var sent á heimili þeirra í borginni Imperatriz, í  norðausturhluta landsins. Eggin komu í plastbakka með skilaboðunum: „Með ást, til Miriam Lira. Gleðilega páska.“ En Miriam Lira er móðir barnanna tveggja.

Dóu með fimm daga millibili

Drengurinn fannst meðvitundarlaus á heimilinu eftir að hafa bitið í eitt eggjanna. Hann hafði orðið mjög veikur og ælt gulleitum vökva. Stjúpfaðir hans reyndi endurlífgunartilraunir en þær reyndust árangurslausar. Farið var með drenginn á spítala þar sem hann var úrskurðaður látinn.

Fimm dögum seinna dó stúlkan eftir að hafa fengið alvarlega líffærabilun. Móðirin beit einnig í egg og veiktist en lifði af.

Við efnagreiningu kom í ljós að út í eggin hafði verið blandað efni sem kallast chumbinho. Það er rottueitur sem er ólöglegt í Brasilíu.

Með hárkollu og falskt nafn

Barbosa, sem er fyrrverandi eiginkona stjúpföður barnanna, var handtekin og ákærð fyrir morðið á börnunum. Rannsókn málsins leiddi í ljós að hún hafði ferðast til Imperatriz, skráð sig þar á hótel á fölsku nafni og ráðið flutningafyrirtæki til að fara með eggin á heimili fjölskyldunnar.

Meðal gagna í málinu voru upptökur úr súkkulaði verslun þar sem Barbosa sást kaupa egg undir fölsku nafni og með hárkollu til að fela sig. Hárkollan fannst á húsleit hjá henni, sem og súkkulaði og rútumiðar til Imperatriz.

Afbrýðisemi

Barbosa neitaði fyrst en viðurkenndi síðan að hafa sent eggin. Hún sagði það þó ekki hafa verið ætlun sína að drepa neinn. Hún hafi aðeins ætlað að hræða móðurina. Barbosa hringdi í hana eftir að eggin voru afhent en gaf ekki upp nafn sitt, aðeins spurði hvort að eggin hefðu skilað sér.

Barbosa var afbrýðisöm og ekki sátt við hvernig hjónabandi hennar og stjúpföður barnanna hafði endað nokkru áður. Refsing hennar var þyngd í ljósi þess að bæði fórnarlömbin voru undir 14 ára aldri.