Undanfarið hafa sveitarfélög landsins verið í óðaönn að ganga frá ráðningu á sveitar- og bæjarstjórum og í einu tilfelli borgarstjóra til næstu fjögurra ára. Launakjör þeirra eru hins vegar misjöfn og hefur sitt sýnst hverjum þegar slíkt ber á góma. Í sumum bæjarstjórnum hefur minnihlutinn kvartað og sagt meirihlutann hafa samþykkt of há laun til handa bæjarstjórum. Meðal þeirra er Garðabær þar sem Almar Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefur verið endurráðinn bæjarstjóri en minnihlutinn segir ljóst að honum séu skömmtuð of rífleg kjör. Meirihlutinn tekur hins vegar ekki undir það.
Sjálfstæðisflokkurinn vann yfirburðasigur í Garðabæ í kosningunum í maí, fékk 58 prósent atkvæða og 8 af 11 bæjarfulltrúum. Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og Garðabæjarlistinn fengu 1 fulltrúa hver flokkur.
Almar Guðmundsson hefur verið bæjarstjóri síðan eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2022.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var endurráðning hans fyrsta mál á dagskrá.
Of há
Hlynur Bæringsson, fyrrum landsliðsmaður í körfubolta og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram sameiginlega bókun minnihlutans.
Þar er bent á ap frá síðasta ráðningarsamningi sem gerður var við Almar eftir kosningarnar 2022 hafi föst laun hans hækkað um rúmlega 500.000 krónur á mánuði og heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna launa, bifreiðastyrks og lífeyrissjóðsframlags til handa bæjarstjóranum hækkað um nærri 580 þúsund krónur á mánuði. Sú hækkun skýrist af því að laun bæjarstjóra séu tengd launavísitölu, fyrirkomulagi sem þorri launafólks njóti ekki og þurfi þess í stað að semja um í kjaraviðræðum.
Föst laun Almars samkvæmt ráðningarsamningi eru 2.695.564 krónur á mánuði. Þar að auki fær hann greiddan bifreiðastyrk vegna 833,33 kílómetra aksturs í hverjum mánuði en samkvæmt núgildandi taxta nema greiðslur fyrir það 124.950 krónum á mánuði.
Til samanburðar má nefna að Almar fær greitt fyrir minni akstur mánaðarlega en Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.
Til viðbótar fær Almar greidd laun, fyrir að vera kjörinn bæjarfulltrúi, samkvæmt samþykkt um laun fyrir störf í bæjarstjórn Garðabæjar frá 2. mars 2017 en sú samþykkt finnst ekki við stutta leit.
Athygli vekur að í ráðningarsamningi Almars eru ákvæði um að sýni hann af sér háttsemi sem sé svo ámælisverð og hafi þar verulega neikvæð áhrif á sveitarfélagið geti það varðað uppsögn, sem taki þá strax gildi án þess að sex mánaða uppsagnarfrestur eigi við. Einnig er tekið fram að gerist Almar sekur um refsiverða háttsemi samkvæmt tilteknum ákvæðum hegningarlaga eða sé sviptur fjárræði varði það fyrirvaralausri uppsögn á samningnum.
Sambærileg ákvæði er ekki að finna í þeim ráðningarsamningum annarra bæjarstjóra sem birtir hafa verið opinberlega.
Ráðningarsamninginn í heild sinni er hægt að kynna sér hér.
Ábyrgð
Minnihlutinn segist gera sér grein fyrir mikilvægi starfs bæjarstjóra Garðabæjar og þeirri ábyrgð sem því fylgi:
„Hins vegar teljum við eðlilegt að vekja athygli á þessum kjörum í ljósi þess að undanfarin misseri hefur verið kallað eftir auknu aðhaldi í opinberum fjármálum til að styðja við baráttuna gegn verðbólgu og til að hagræða í rekstri hins opinbera.“
Minnihlutinn segist telja mikilvægt að sömu sjónarmið um aðhald, hófsemi og ábyrga meðferð almannafjár gildi einnig þegar komi að kjörum æðstu stjórnenda sveitarfélagsins. Best væri ef þeir leiddu veginn með góðu fordæmi. Eðlilegra væri að samningur Almars fæli í sér reglubundið endurskoðunarákvæði í stað sjálfvirkrar vísitölutengingar launa. Slíkti myndi skapa aukið svigrúm til að meta kjörin í ljósi aðstæðna hverju sinni og samræmast betur þeim kröfum um aðhald sem gerðar séu annars staðar í opinberum rekstri.
Sambærilegt
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tóku hins vegar ekki undir þetta. Í bókun þeirra segir:
„Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins benda á að ráðningarkjör bæjarstjóra eru ákveðin af bæjarstjórn á grundvelli ábyrgðar, umfangs og eðlis starfsins. Bæjarstjóri Garðabæjar ber ábyrgð á daglegri stjórnun sveitarfélags sem sinnir fjölbreyttri þjónustu við þúsundir íbúa, stýrir umfangsmiklum rekstri og fjárfestingum og veitir yfir hundruðum starfsmanna forystu.“
Mikilvægt sé að um ráðningarkjör bæjarstjóra ríki skýrleiki og gagnsæi. Ráðningarsamningur Almars uppfylli þau markmið og byggi að öðru leyti á þeim grunni sem bæjarstjórn hafi áður samþykkt.
Minna Sjálfstæðismenn á að sú framkvæmd hafi almennt tíðkast hjá stærri sveitarfélögum landsins að grunnlaun bæjarstjóra séu tengd launavísitölu. Slík tenging tryggi að launakjör fylgi almennri þróun á vinnumarkaði með gagnsæjum og málefnalegum hætti í stað þess að vera háð reglulegum pólitískum ákvörðunum. Fyrirkomulagið stuðli að fyrirsjáanleika, stöðugleika og faglegri umgjörð um ráðningarkjör æðsta stjórnanda sveitarfélagsins.