Lífleg umræða um verð á tjaldsvæðum á sér stað í FB-hópnum Tjaldsvæði - umræðuvettvangur.
Kona ein skrifar þar um verðlag á tjaldsvæðinu í Vogum:
„Nei hættu nú alveg. 21.600 kr fyrir þrjár nætur m. rafmagni á tjaldsvæðinu í Vogunum. Er þetta orðið normal eða er þetta okur ? Við erum 2 fullorðin og eitt barn. (barnið fær frítt)“
Flestir sem taka þátt í umræðunni telja verðið vera eðlilegt enda sé mikill kostnaður á bak við rekstur tjaldsvæða. Ein kona bendir þó á að hún hafi greitt mun lægra verð fyrir tjaldgistingu í Stóra Lambaga og lætur afar vel af þeim viðskiptum:
„Borgaði 5600 kr fyrir 2 nætur með rafmagni á Stóra Lambhaga - 2 fullorðnir og 2 börn. Kannski ekki hægt að bera það saman við stóru tjaldstvæðin - engin leiktæki né leikvöllur fyrir börnin. En Lambhagi er draumastaður að vera á - rekstraraðilinn er algjör perla. Alltaf allt upp á 10 hjá honum.“
Útilegukortið borgar sig
Fyrir þá sem nota tjaldsvæði mikið margborgar sig að kaupa Útilegukortið. Það kostar um 25 þúsund krónur en er hressilega niðurgreitt hjá mörgum stéttarfélögum. Kortið veitir aðganga að tjaldsvæðum fyrir tvo fullorðna og fjögur börn undir 16 ára aldri.