Fréttir

Björn og Hannes senda Þorgerði Katrínu tóninn vegna ummælanna: „Hvílíkt froðusnakk og lygi“

Mynd
Björn Bjarnason, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Jakob Bjarnar Grétarsson. Samsett mynd.

Klippa úr viðtali við Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra gengur nú um í netheimum, þar segir hún að Davíð Oddsson hafi í ráðherratíð sinni ekki náð tvíhliða fundi með Bandaríkjaforseta. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Davíðs, og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, segja þetta ekki rétt. 

Eins og DV hefur fjallað um hafa þeir gagnrýnt ríkisstjórnina og þá sérstaklega Þorgerði Katrínu fyrir að hitta ekki nógu háttsetta embættismenn í Bandaríkjunum. Hafa þeir áhyggjur af því að Ísland sé að færa sig nær Evrópu og sé þannig að fjarlægjast Bandaríkin. 

Sjá frétt: Hafa miklar áhyggjur af því að ríkisstjórn Íslands hafi reitt Trump til reiði

Þorgerður Katrín var spurð út í þetta í viðtali á Samstöðinni.

„Þeir í Sjálfstæðisflokknum, Björn þar á meðal, virðast sjá hag sinn í að tala niður samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Þau eru mjög góð, sérstaklega á sviði varnar- og öryggismála. Ég lét gera samantekt á því hvað forverar mínir í starfi hafa hitt, þeir hafa verið að hitta nokkurnveginn sama fólkið í stjórnkerfinu,“ sagði hún. Í klippunni sem gengur um í netheimum segir hún svo:

„Davíð Oddsson náði aldrei að fá tvíhliða fundi með forsetum Bandaríkjanna á sínum tíma. Fór kannski í floti með Norðurlöndunum en tvíhliða fundi…“ 

„Ekki þótt Hannes Hólmsteinn færi með honum,“ skaut Björn Þorláksson þáttastjórnandi inn í. 

„Nei nei nei.“

Þá bætti hún við: „Eitt er menn sem halda úti sinni bloggsíðu eins og Björn, sem mér finnst miður að sjá hvernig hefur þróast undanfarin ár, þetta var maður sem sá hag í að tengjast meðal annars Evrópu á sínum tíma og var þátttakandi í að koma EES-samningunum áfram, sá hag í aðild að EFTA. Ég lít með stolti til 1949, til þeirra sem komu okkur í NATO, þá voru nákvæmlega sömu raddirnar uppi. Að þetta væri skerðing á fullveldi, Íslendingar færu í einhverja heri og við myndum tapa sjálfstæði.“ 

Klippan sem um ræðir:

Hannes Hólmsteinn skilur ekkert í Þorgerði Katrínu:

„Mér er þetta óskiljanlegt. Davíð Oddsson hitti í forsætisráðherratíð sinni alla forseta Bandaríkjanna á einkafundum, en auk þess oft á leiðtogafundum Atlantshafsbandalagsins. Ég var með honum á einum slíkum fundi. Hvað er komið yfir Þorgerði Katrínu?“

Björn bætti við: „Þetta er ótrúlegt. Hvílíkt froðusnakk og lygi.“

Enginn í jafn góðum tengslum

Hannes er vel að sér í hvað Davíð aðhafðist í sinni forsætisráðherratíð. „Það er eitthvað farið að slá út í fyrir henni. Enginn forsætisráðherra náði jafngóðum tengslum við þá þrjá Bandaríkjaforseta, sem sátu í tíð hans og Davíð, og raunar líka við ekkju Reagans, Nancy. Sérstaklega var hlýtt á milli Davíðs og Bush yngri og milli hans og Clintons, og hittust þeir margoft, meðal annars þeir Bush og Davíð í Hvíta húsinu, eins og ég get borið vitni um. Við Davíð sungum þar Happy Birthday to you, Mister President, því að Bush átti afmæli þennan dag. Um kvöldið fórum við í kvöldverð með Nancy Ruwe, ekkju Nicks Ruwe sendiherra, en hún var áhrifakona í Lýðveldisflokknum, Repúblikönum, þekkti þar alla.“

Fleipur geta komið öllum í koll 

Björn hefur áhyggjur af þessu og segir á bloggi sínu í dag: „Á stuttu myndskeiði sem nú fer um samfélagsmiðla má sjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra reyna að afsaka algjöran skort sinn á samráði við ráðamenn í Washington með því að að forverar hennar hafi ekki hitt hærra setta menn í bandaríska stjórnkerfinu en hún. Leggur hún lykkju á leið sína til að ljúga því að Davíð Oddsson hafi aldrei hitt Bandaríkjaforseta,“ segir hann.

„Leyfi utanríkisráðherra sér að fara með fleipur á heimavelli kemur það henni einni í koll. Tali hún svona óvarlega á alþjóðavettvangi um þjóðarhagsmuni kemur það okkur öllum í koll.“

Hvern hitti Davíð sem utanríkisráðherra?

Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, ákallaði æðri máttarvöld. „Ekki að ég sé einhver varðhundur Þorgerðar Katrínar en mér þykir leitt að sjá svona mikla og "réttláta" reiði missa marks með svona átakanlegum hætti. "Davíð Oddsson hitti í forsætisráðherratíð sinni alla forseta ..." skrifar til að mynda Hannes Hólmsteinn. Í sinni "forsætisráðherratíð" myndi þarna vera lykilorð. Þorgerður var að tala um forvera sína í starfi. Forverar myndu þá vera utanríkisráðherrar,“ sagði hann. 

„Hvað hitti Davíð utanríkisráðherra marga forseta Bandaríkjanna? Eru menn að misskilja Þorgerði viljandi eða eru menn algjörlega hættir að hugsa heila hugsun? Ég veit ekki alveg hvort er verra, svei mér þá.“