Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir það alrangt að laun hans verði hærri en forvera hans. Þvert á móti sé hann að spara bæjarfélagi sínu 4,4 milljónir á ári. Þetta kemur fram í Facebook-færslu bæjarstjórans þar sem hann svarar gagnrýni minnihlutans í bæjarstjórn sem hefur sakað Vilhjálm um að vera á ofurlaunum.
„Rétt skal vera rétt! Laun bæjarstjóra Reykjanesbæjar eru að lækka og nemur hagræðingin af bæjarstjóraskiptunum yfir fjórum milljónum króna á ári fyrir Reykjanesbæ,“ skrifar bæjarstjórinn sem telur að gagnrýni minnihlutans hafi verið sett fram í undarlegu óðagoti. Vilhjálmur fer yfir launakjör síns og forvera hans:
„Laun fyrrverandi bæjarstjóra, Kjartans Más Kjartanssonar, voru 2.872.306 krónur á mánuði. Laun mín sem bæjarstjóra eru 2.630.942 krónur á mánuði.
Sem kjörinn fulltrúi fæ ég jafnframt 241.364 krónur á mánuði í laun fyrir það hlutverk. Þá greiðslu get ég ekki afþakkað. Heildargreiðslur til mín nema því sömu fjárhæð og laun fyrrverandi bæjarstjóra, en munurinn er sá að laun bæjarstjóraembættisins sjálfs hafa verið lækkuð um 241.364 krónur á mánuði.
Það þýðir að Reykjanesbær sparar tæplega 2,9 milljónir króna á ári vegna þessarar breytingar.
Þá hef ég einnig ákveðið að afþakka fundarþóknanir fyrir bæjarstjórnarfundi, en bæjarfulltrúar fá rúmlega 68 þúsund krónur fyrir hvern fund. Miðað við tvær fundarþóknanir á mánuði nemur sá sparnaður um 1,5 milljónum króna á ári
Samtals nemur hagræðingin vegna bæjarstjóraskiptanna því um 4,4 milljónum króna á ári fyrir Reykjanesbæ. Það er því verið að minnka kostnað skattgreiðenda, ekki hækka.“
Við þetta bætir Vilhjálmur að meirihlutinn hafi jafnframt ráðist í breytingar á nefndarkerfi sem muni spara hátt í 10 milljónir á ári. Telur bæjarstjórinn eðlilegt að vinstriflokkarnir í minnihlutanum séu ekki sáttir við þetta, en meirihlutinn hafi lofað hagræðingu og stendur við það.
Vilhjálmur segir: „Þetta er ómerkilegur og rangur málflutningur frá fólki sem ætti að vita betur. Ef þau ætla að vera föst í röngum málflutningi og upplýsingaóreiðu þá er það þeirra forgangsröðun,“ og jafnframt tekur hann fram að meirihltinn ætli að sér að hagræða þar sem hægt er, tala upp sveitarfélagið og efla grunnþjónustu. Minnihlutanum sé frjálst að taka þátt í þeirri vegferð eða halda áfram á sinni eigin. Nýr meirihluti er mættur til starfa með uppbrettar ermar og hafi nú þegar sýnt að hér sé bæjarstjórn á ferðinni sem muni láta verkin tala og lætur sér fátt um upplýsingaóreiðu finnast.
Sjá einnig: Sótt að Vilhjálmi á bæjarstjórnarfundi