segir Jón Ásgeir Jóhannesson, lengi kenndur við Bónus, í viðtali við Chess After Dark.
Annar þáttastjórnenda, Birkir Karl Sigurðsson, segir fáa hafa gert jafn marga samninga og Jón Ásgeir. „Maður fer ekki inn í samningaviðræður búinn að ákveða að tapa þeim.“
Jón Ásgeir jánkar því: „Þú endist ekki lengi ef það er markmiðið og við ætlum ekki að gefa neitt. Við sjáum alveg þjóðir sem eru líkar okkur sem líður ágætlega inn í þessu samstarfi. Við erum með galla og áhættu í okkar litla gjaldmiðli. Það er að mínu viti mjög sterkt að hafa stærra bakland.“
Aðspurður um af hverju upplýsingaóreiða sé í gangi þar sem engin áhætta felist í að svara með jái segir Jón Ásgeir:
„Það eru náttúrulega öfl sem vilja halda…ef við skoðum þetta þá komumst við að einhverju góðu og það verður til þess að við förum inn í þetta sem væri þá slæmt. Þeir sem eru alfarið á móti þessu. Við eigum öfluga samningamenn, ef við sjáum að þurfi að takast á um eitthvað til að koma málinu í höfn, þá treysti ég að við höfum fólk í það. En það er skrýtið að segja nei við að skoða. Einhverjir segja að þetta sé bara tímaeyðsla, en mér finnst það ekki sanngjarnt að loka málinu þannig.“„Ég held það séu alveg 50-50 líkur að ef við segjum já þá segjum við nei í framhaldinu, en mér finnst allt í lagi að við skoðum forsendurnar, Annars verðum við bara að giska næstu, eins og ég sagði, 10-15 ár: „Hvað var þarna í raun?““
Aðspurður um hvort þetta sé ekki sambærilegt EES segir Jón Ásgeir að með EES og EFTA hafi því verið fundið allt til foráttu fyrir inngöngu.
„Þegar EFTA-samningurinn var gerður þá var sagt að að sælgætisiðnaðurinn á Íslandi myndi fara í rúst. Ég held það séu fá lönd í heiminum með eins öflugan innlendan sælgætisiðnað eins og íslendingar. Það er alltaf þannig að ákveðinn hópur þjóðar hræðist breytingar hverjar sem þær eru.“
Hlusta má á viðtalið við Jón Ásgeir í heild sinni hér fyrir neðan: