Fréttir

Pálmi Gests hissa á umræðunni: „Fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum“

Mynd
Pálmi Gestsson.

„Það er leiðinlegt að segja það en fíflunum hefur fjölgað með samfélagsmiðlunum,“ segir Pálmi Gestsson, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, í athugasemd við færslu fjölmiðlamannsins Egils Helgasonar á Facebook.

Í færslu sinni gerði Egill frétt

Vísis

– eða kannski öllu heldur viðbrögðin við fréttinni á

Facebook

-síðu miðilsins – að umtalsefni.

Í umræddri frétt var greint frá því að samevrópsk nefnd undir forystu Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, hefði skorað á Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina að lýsa yfir neyðarástandi í lýðheilsumálum á alþjóðavísu vegna loftslagsbreytinga.

Umrædd frétt vakti mikil viðbrögð á Facebook og voru flestar athugasemdirnar afar neikvæðar í garð Katrínar. Þá lýstu margir yfir verulegum efasemdum um loftslagsbreytingar og neikvæðar afleiðingar þeirra. Þetta vakti athygli Egils sem skrifaði eftirfarandi færslu:

„Stundum verður maður hissa. Á Vísi birtist frétt um að Katrín Jakobsdóttir hafi verið formaður sam-evrópskrar nefndar sem leggur til að lýst sé yfir neyðarástandi vegna þess hvernig loftslagsbreytingar ógna heilsufari. Fréttinni er deilt á Facebook. Undir eru meira en hundrað athugasemdir. Þær spanna frá því að vera grófar eða illkvittnislegar yfir í að vera verulega meiðandi fúkyrði. Ég sé ekki að þarna sé að finna eitt jákvætt orð. Og enginn sem skrifar virðist hafa nokkra trú á að loftslagsbreytingar séu vandamál.“

Egill bendir svo á að eitt af því sem fjallað er um er hvernig sjúkdómar sem berast með skordýrum og hefur verið afar lítið af í Evrópu og Bandaríkjunum eru farnir að breiðast út með hækkandi hitastigi og eiga eftir að ágerast.

„Þá getur fólk farið að upplifa þetta sjálft í fríunum sínum í Flórida, á Grikklandi og Spáni. Kemur fram í Guardian að aðalvísindaráðgjafi nefndarinnar hafi verið Sir Andrew Haines, einn fremsti sérfræðingur heims í hitabeltissjúkdómum.“

Jón Magnús Jóhannesson læknir bendir á að það að trúa ekki á loftslagsbreytingar af mannavöldum sé ígildi þess að vera á móti bólusetningum. „Algjör vitleysa sem á við engin rök að styðjast,“ segir hann.