Fréttir

Skemmdarverk unnin á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum í nafni Sjálfstæðisflokksins

Mynd
Myndir/Miðflokkurinn í Vestmannaeyjum á Facebook

Skemmdarverk voru unnin á kosningaskrifstofu Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Skemmdarvargurinn eða -vargarnir krotuðu vísanir til Sjálfstæðisflokksins, xD, á stéttina fyrir framan skrifstofuna, á hurð, á veggi og á glugga. Eins var búið að teikna stæðilegan getnaðarlim á einn vegginn.

Miðflokkurinn deildi myndum af aðkomunni á Facebook:

„Það er mjög gaman í kosningabaráttu og við höfum gaman af skotum og kýting en ekki skemmdarverkum“

Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum hafa fordæmt skemmdarverkin.

Hildur Sólveig Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, segir að um ólíðandi og ömurlega framkomu sé að ræða og verst sé að skemmdarverkin séu unnin í nafni Sjálfstæðisflokksins.

Hildur skrifar í athugasemd:

„Þetta er auðvitað algjörlega ömurleg og ólíðandi framkoma. Mikið er leitt að sjá þessi skemmdarverk og enn verra þykir mér að spellvirkinn/spellvirkjarnir skuli merkja skemmdarverkin með merkjum Sjálfstæðisflokksins.“

Undir þetta tekur flokksbróðir Hildar, Trausti Hjaltason, sem er í öðru sæti á lista Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum fyrir kosningarnar á laugardaginn:

„Þetta eru skemmdarverk sem augljóslega eru ekki neinum sæmandi. Eitthvað sem við sem samfélag viljum ekki sjá.“

Kjartan Vídó Ólafsson, sem situr í 6. sæti á lista Sjálfstæðismanna, segir:

„Svona vill enginn sjá“