Fréttir

Fósturfaðir á Suðurnesjum grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn fósturbarni

Mynd
Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Mynd: Eyþór Árnason

Fertugur karlmaður á Suðurnesjum er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni sem var vistað hjá honum í fóstri. Frá þessu greinir fréttastofa

RÚV

. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald en að sögn RÚV voru fleiri börn í fóstri á heimilinu. Húsleitir fóru fram um helgina en lögreglan mun verjast allra fregna af rannsókninni.