Fréttir

Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu

Mynd
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti.

Þriggja daga vopnahlé hefst á milli Rússa og Úkraínumanna á morgun, laugardag. Volodímír Selenskí staðfesti þetta.

Að sögn Donald Trump Bandaríkjaforseta mun vopnahléið standa yfir dagana 9. til 11. maí. Á morgun er sigurdeginum svokallaða fagnað, það er yfir nasistum í seinni heimsstyrjöldinni. Sá dagur er mikill hátíðisdagur í Rússlandi.

Þá hefur verið boðað að stríðsaðilarnir skiptist á föngum. Einnig er vonast til þess að þetta vopnahlé verði upphafið að frekari friðarviðræðum.