fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

„Árásir á íslensk fyrirtæki eru orðnar hluti af daglegum veruleika“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 8. apríl 2026 09:37

Óskar Ingi, markaðsstjóri Syndis.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öryggisráðstefnu Syndis fer fram í Hörpu á morgun. Sannkallað þungavigarfólk í netöryggismálum í Evrópu mætir þar til leiks og mun fjalla um helstu ógnir sem fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar standa frammi fyrir.

Meðal fyrirlesara eru netöryggissérfræðingar sem stýra vörnum hjá stórum stofnunum í Evrópu. Má þar nefna þær Petru Klein og Helénu Malm frá Swedband. Þær starfa í miðju hringiðunnar hjá einum stærsta banka Norðurlandanna og búa yfir dýrmætri innsýn í hvernig á að byggja upp öryggismenningu sem virkar í raunveruleikanum en ekki bara á pappír.

Þá verður Paula Januszkiewicz einnig með fyrirlestur en hún er einn virtasti sérfræðingur heims þegar kemur að öryggi innviða og hefur eytt áratugum í að hjálpa fyrirtækjum að loka glufum sem aðrir sjá ekki.

Ásamt þeim mæta David Jacoby, sem er margverðlaunaður fyrir störf sín í netöryggi, og Geert Baudewijns, sem er leiðandi í baráttunni gegn lausnargjaldsárásum í Evrópu.

Þá verður Ragnar Sigurðsson, netöryggissérfræðingur frá Syndis, einnig með erindi en hann mun fjalla um hvernig sterk viðbragðsmenning getur hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að bregðast hraðar og betur við árásum þegar á reynir.

„Við erum afar stolt af því að bjóða upp á þessa öflugu sérfræðinga á öryggisráðstefnu okkar. Þetta er fólk sem talar á stærstu ráðstefnum heims og það er gríðarlegt tækifæri fyrir íslenska stjórnendur og sérfræðinga að fá þessa þekkingu beint í æð hér heima. Stafrænar ógnir þekkja engin landamæri og árásir á íslensk fyrirtæki eru orðnar hluti af daglegum veruleika. Á sama tíma og tæknin þróast á ógnarhraða, eykst þörfin á að við deilum reynslu og lærum af þeim bestu í heiminum. Það er einmitt kveikjan að ráðstefnunni,“ segir Óskar Ingi, markaðsstjóri Syndis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu

Hekla kveður Laugaveg með glæsilegri sumarsýningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni

Ársæll fær ekki að leiða ráðherra og aðstoðarmenn fram fyrir dómi – Þykir ekki hafa lögvarða hagsmuni