fbpx
Sunnudagur 24.maí 2026
Fréttir

Þúsundir skrifað undir lista gegn kílómetragjaldi – „Óréttlátt í grunnatriðum“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 30. mars 2026 13:30

Ekki eru allir sáttir við kílómetragjaldið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmlega fimm þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista gegn kílómetragjaldinu. Breytingarnar tóku gildi í upphafi árs og hafa lagst misvel í landsmenn.

„Við undirrituð krefjumst þess að kílómetragjald á ökutæki verði fellt niður í heild sinni,“ segir í færslu með undirskriftalistanum á vefsvæðinu island.is.

Listinn var stofnaður í dag, 30. mars og gildir í mánuð, það er til 30. apríl næstkomandi. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og þegar þetta er skrifað hafa 5.477 manns skrifað nafn sitt á hann.

Í staðinn fyrir olíugjald

Ný lög um kílómetragjald tóku gildi um áramót. Samkvæmt þeim greiða allir eigendur ökutækja mánaðarlegt gjald óháð orkugjafa, en fyrir höfðu aðeins eigendur rafbíla greitt slíkt gjald. Í staðinn var olíugjaldið fellt niður.

„Núverandi kerfi er ekki aðeins gallað í framkvæmd, heldur einnig óréttlátt í grunnatriðum,“ segir í færslunni. „Almenningur greiðir nú þegar bifreiðagjöld og eldsneytisverð hefur hækkað á ný.“

Segja galla í kerfinu

Fullyrt er að skekkja sé á milli raunverulegs aksturs og þess sem kílómetramælir sýnir, sem geti leitt til rangrar gjaldtöku.

„Við viljum einnig leggja áherslu á að stjórnvöld geta ekki lögfest skatta á almenning í trausti þess að fyrirtæki á frjálsum markaði muni lækka verð eða hagnað, og byggja þannig tekjuöflun ríkisins á óvissu um að komið verði til móts við skattgreiðendur með lækkun vöruverðs,“ segir að lokum.

Undirskriftalistann má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu

Íslenska ríkið bótaskylt vegna vítaverðrar framgöngu Tómasar í plastbarkamálinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku

Hrafn sá mann „chugga“ flösku af Egils Orku
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika

Segir að upptaka evru myndi lækka verðbólgu en minnka sveigjanleika