Kærunefnd húsamála hefur vísað frá máli þar sem húsfélag í fjölbýlishúsi í Reykjavík óskaði eftir áliti nefndarinnar vegna notkunar fyrirtækis á eignarhluta sínum í húsinu en umræddur eignarhluti er á 1. hæð hússins. Húsinu er skipt í 41 eignarhluta en þau sem búa í húsinu urðu vægast sagt ósátt þegar opnaður var skemmtistaður í eignarhluta fyrirtækisins. Til stendur að skemmtistaðurinn fari úr húsinu en húsfélagið vildi hins vegar fá álit nefndarinnar á því hvort fyrirtækinu væri ekki óheimilt að leigja eignarhlutann aftur út fyrir sams konar starfsemi.
Húsfélagið krafðist þess að viðurkennt yrði að fyrirtækið skyldi fara eftir þinglýstum kvöðum og reglum framvegis þannig að íbúar gætu treyst því að í framtíðinni yrði eignarhlutinn einungis leigður út til starfsemi sem að öllu jöfnu félli undir íbúðir, verslanir og skrifstofurými.
Kröfur fyrirtækisins voru að málinu yrði vísað frá nefndinni en til vara að kröfu húsfélagsins yrði hafnað.
Ónæði
Húsfélagið sagði í álitsbeiðni sinni að fyrirtækið hafi haustið 2021 leigt eignarhluta sinn til starfsemi sem samrýmdist hvorki þinglýstri kvöð hússins né þinglýstum húsreglum. Fyrirvaralaust hafi verið búið að opna skemmtistað á 1. hæð. Staðurinn gerði út á að laða til sín ungt fólk, vinnustaði og aðra þar sem lagt væri út frá drykkjuleikjum og karaoke. Ítrekað hafi íbúar kvartað til heilbrigðiseftirlitsins og lögreglu vegna óláta, háværrar tónlistar, öskra og láta langt fram eftir kvöldi. Í stuttu máli hafi heilbrigðiseftirlitið sagt að þeirra valdheimildir og verksvið snéru ekki að kvöðum á húsum, sem væru afar undarleg vinnubrögð.
Jafnframt hefði eftirlitið viðurkennt að það væri afar óheppilegt að vera með skemmtistað í íbúðarhúsi. Einnig hafi eftirlitið framkvæmt hávaðamælingar og staðfest að það skapaðist ónæði af þessum stað. Íbúar hafi kvartað til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála sem hafi fellt niður starfsleyfi staðarins. Staðurinn hafi reyndar þegar sótt aftur um leyfi og fengið nýtt, sem hafi verið íbúum óskiljanlegt. Aftur hafi verið kvartað til úrskurðarnefndarinnar og opnunartími staðarins verið skertur síðan.
Fulltrúi fyrirtækisins hafi þó upplýst á aðalfundi húsfélagsins í mars 2025 að skemmtistaðurinn færi úr húsinu eftir rúmlega ár, sem hafi fallið íbúum vel í geð enda mikið búið að ganga á í allt of mörg ár. Aftur á móti hafi íbúar ekki neitt í hendi sér um hvað myndi koma í staðinn í umrætt leigurými og hafi fyrirtækið ekki getað eða viljað gefa neitt upp um það. Það væri í raun ástæða þessarar álitsbeiðni.
Er að fara
Fyrirtækið sagði í sínum andsvörum að skemmtistaðurinn hafi starfað í rýminu frá árinu 2021 á grundvelli starfsleyfis útgefnu af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Ósætti hafi verið meðal íbúa um starfsemina og hafi fyrirtækið og skemmtistaðurinn eftir fremsta megni reynt að koma til móts við íbúa, svo sem með hljóðbætandi framkvæmdum í rýminu. Leigusambandinu væri hins vegar nú lokið.
Gerður hafi verið samningur um leigu á öðru húsnæði þangað sem starfsemi skemmtistaðarins verði færð í haust. Því væri gerð krafa um frávísun þar sem ágreiningur snérist um framtíðarstarfsemi í umræddu rými. Ekki lægi fyrir hvaða starfsemi yrði þar en fyrirtækið sagðist að það myndi, líkt og áður, tryggja að kvöðum sem hvíli á húsnæðinu væri framfylgt við nýtingu þess.
Kærunefnd húsamála tekur undir með fyrirtækinu. Það liggi ekki fyrir hvaða starfsemi verði í eignarhluta þess eftir að skemmtistaðurinn verði farinn. Virðist þannig sem um væri að ræða kröfu sem sett væri fram í því skyni að koma í veg fyrir að ágreiningur skapaðist milli eigenda síðar meir. Skilyrði þess að mál komi til úrlausnar af hálfu nefndarinnar sé hins vegar að ágreiningur sé til staðar milli eigenda. Þar sem ekki liggi fyrir hvort ágreiningur sé til staðar sé um að ræða lögspurningu en það sé aftur móti ekki hlutverk nefndarinnar að svara slíkri fyrirspurn.
Nefndin varð því við kröfu fyrirtækisins og vísaði málinu frá.