

Fréttastofa ABC greindi frá því í gær að bandaríska alríkislögreglan hefði sent löggæslustofnunum í Kaliforníu eins konar viðvörun um að Íran gæti hefnt sín fyrir árásir Bandaríkjamanna síðustu daga og vikur.
„Nýlega hafa borist upplýsingar þess efnis að frá og með byrjun febrúar 2026 hafi Íran, að sögn, haft uppi áform um að framkvæma skyndiárás með notkun ómannaðra loftfara frá ótilgreindu skipi undan ströndum meginlands Bandaríkjanna, einkum gegn ótilgreindum skotmörkum í Kaliforníu, komi til þess að Bandaríkin ráðist í hernaðaraðgerðir gegn Íran,“ sagði í viðvöruninni sem dreift var í lok febrúarmánaðar.
„Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um tímasetningu, framkvæmd, möguleg skotmörk eða hverjir kynnu að standa að baki þessari meintu árás,“ sagði enn fremur.
Þá hafa áhyggjur Bandaríkjamanna aukist eftir að yfirvöld hleruðu dulkóðuð skilaboð sem talin eru hafa verið send frá Íran. Samkvæmt heimildum voru skilaboðin túlkuð sem mögulegt merki um að virkja hryðjuverkamenn sem liggja í dvala, svokallaða sleeper cells, innan Bandaríkjanna.
Trump staðfesti í gærkvöldi, samkvæmt frétt Mail Online, að yfirvöld fylgdust náið með þróun mála. „Það er verið að rannsaka þetta. Það er margt að gerast og við getum aðeins brugðist við því sem kemur upp,“ sagði hann við fréttamenn í gærkvöldi.
Forsetanum varð einnig tíðrætt um innflytjendastefnu forvera síns, Joe Biden, sem hann segir hafa skapað hættu á innri öryggisógnum. Hann kallaði Biden „versta forseta í sögu landsins“ og bætti við:
„Margir komu inn á tímum Biden með þessari heimskulegu opnu landamærastefnu. En við vitum hvar flestir þeirra eru. Við höfum auga með þeim öllum, held ég.“
Trump sagði jafnframt að hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna gegn Íran hefðu skilað árangri. „Íran er að lamast. Við höfum eyðilagt öll skipin þeirra þeirra. Ég held að við séum í mjög góðri stöðu,“ sagði hann.