Fréttir

10 tómustu Ameríkuvélar Icelandair – Hætt að fljúga til Detroit

Mynd
Mismikill áhugi er á flugleiðunum til Ameríku.

Nýlega var greint frá því að flugfélagið Icelandair hefði slegið met í sætanýtingu árið 2025 en þá fór farþegafjöldinn yfir 5 milljónir. Engu að síður tapaði félagið 1,2 milljarði króna á árinu.

Í miðlinum Simple Flying eru teknar saman þær 10 leiðir Icelandair sem hafa verstu sætanýtinguna í Bandaríkjunum. Eru þær eftirfarandi:


  1. Keflavík til Detroit (hætt í janúar árið 2026) – 67 prósent
  2. Keflavík til Pittsburgh – 69,2 prósent
  3. Keflavík til Nashville – 73,5 prósent
  4. Keflavík til New York JFK – 76,8 prósent
  5. Keflavík til Boston – 77,9 prósent
  6. Keflavík til Washington Dulles – 80,3 prósent
  7. Keflavík til Baltimore – 80,7 prósent
  8. Keflavík til Seattle – 81,9 prósent
  9. Keflavík til Orlando – 82,3 prósent
  10. Keflavík til Newark – 84,5 prósent