fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025
Fréttir

Sigga Beinteins er bæjarlistamaður Kópavogs 2025

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 23. maí 2025 16:31

Á myndinni eru Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Sigríður Beinteinsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir formaður menningar- og mannlífsnefndar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Beinteinsdóttir, betur þekkt sem Sigga Beinteins, er bæjarlistamaður Kópavogs 2025. Tilnefningin var formlega tilkynnt við hátíðlega athöfn í Bókasafni Kópavogs í dag af Elísabetu Sveinsdóttur, formanni menningar- og mannlífsnefndar, en nefndin velur bæjarlistamann.

Sigga Beinteins er ein af ástsælustu og virtustu söngkonum landsins. Hún hafði sungið í bílskúrshljómsveit í Kópavogi allt frá árinu 1980 þegar HLH flokkurinn fékk hana til liðs við sig í laginu Vertu ekki að plata mig sem skaut Siggu upp á stjörnuhimininn. Hún starfaði lengst af með hljómsveitinni Stjórnin á níunda áratugnum og hefur síðan þá verið áberandi í íslensku tónlistarlífi, bæði sem sólólistamaður og í samstarfi við aðra. Sigga hefur þrisvar sinnum keppt fyrir Íslands hönd í Eurovision og hefur gefið út gríðarlegan fjölda vinsælla laga sem notið hafa mikillar hylli almennings. Auk ferilsins sem poppsöngkona hefur Sigga lagt sitt af mörkum til barnaefnis á Íslandi, meðal annars með útgáfu á tónlistarverkefninu Söngvaborg, þar sem lög og sögur fyrir börn fá að njóta sín á lifandi og skapandi hátt.

Tilnefningin er viðurkenning fyrir það ómetanlega framlag sem Sigga hefur fært landsmönnum og íslensku tónlistarsenunni í gegnum árin. Hún hefur verið búsett í Kópavogi um árabil, en með tilnefningunni gefst bæjarfélaginu tækifæri til að heiðra og þakka einstökum listamanni og styrkja tengslin við hana.

Í hlutverki sínu sem bæjarlistamaður hyggst Sigga Beinteins standa fyrir sérstakri söngskemmtun fyrir börn í efstu deildum leikskóla Kópavogs. Þá eru einnig fyrirhugaðir tónleikar í Salnum síðar á árinu, þar sem hún lítur yfir ferilinn og miðlar reynslu og sögum úr langri og litríki vegferð í tónlistinni.

Kópavogsbær fagnar því innilega að fá Siggu Beinteins í hóp bæjarlistamanna og hlakkar til samstarfsins á komandi ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært

Lögregluaðgerð á Edition hótelinu – Tveir látnir – Starfsfólk í uppnámi – Uppfært
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm

Vafasömu ítölsku verktakarnir sem klúðruðu uppbyggingu Kársnesskóla flúnir land – Skorað á forsvarsmanninn að mæta fyrir dóm
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði – Áminning vegna skammarpósta til dómara stendur

Ómar hafði ekki erindi sem erfiði – Áminning vegna skammarpósta til dómara stendur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Bongóblíða í höfuðborginni í dag

Bongóblíða í höfuðborginni í dag
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda

Steingrímur fagnar afmæli FM957 – Heiti stöðvarinnar er hans sem og viðurnefni Auðuns og Sigvalda