fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fréttir

Ósátt við að refaskytta hafi verið valin með hlutkesti

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 16. maí 2025 14:30

Refaveiði er hitamál í Skagafirði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúi Vinstri grænna í landbúnaðar- og innviðanefnd Skagafjarðar er ósátt við að refa- og minkaskytta í Hegranesi hafi verið valin með hlutkesti. Veiðimaðurinn þurfi að hafa sterk tengsl við svæðið.

Málið var rætt á fundi nefndarinnar í gær. Það er að þrjár skyttur hafi sótt um refaveiðina og einn um minkaveiðina í Hegranesi fyrir botni Skagafjarðar. Nafn Elvars Arnar Birgissonar var dregið upp úr potti til að sinna refaveiðinni en hann hafði einmitt sótt um minkaveiðina einnig.

Þetta var Hildur Magnúsdóttir, fulltrúi Vinstri grænna og óháðra í nefndinni, ekki sátt við. Lét hún bóka að í sameiningarsamningi við fyrrum Rípurhrepp komi skýrt fram að við veiðistjórn og ráðningu veiðimanna í Hegranesi skuli leitast við að ráða einstaklinga með sterk tengsl við svæðið. En Rípurhreppur sameinaðist 10 öðrum sveitarfélögum árið 1998 til að mynda sveitarfélagið Skagafjörð.

„Ljóst er að ef byggja á ráðningarferlið á hlutkesti á milli umsækjenda sem ekki allir eru búsettir á eða við svæðið, skapast hætta á að veiðieftirliti verði ekki sinnt með fullnægjandi hætti, auk þess sem með slíku verklagi væri verið að ganga gegn ákvæðum og anda sameiningarsamningsins,“ lét hún bóka.

Svöruðu Einar Einarssonar Framsóknarmaður og Sveinn Finster Úlfarsson, fulltrúi Byggðalista, á þá leið að jafnræði yrði að ríkja á meðal íbúa í Skagafirði sem uppfylla kröfur sem gerðar eru til veiðimanna.

„Upprunni einstaklinga eða aðrar tengingar þeirra við umrædd svæði geta ekki haft áhrif þar á og því eðlilegt að dregið sé á milli manna, sækji fleiri en einn um hverju sinni,“ létu þeir bóka. Gamla samkomulagið skuldbindi sveitarfélagið ekki af öðru en að sinna sínum lögbundnu skyldum og jafnræði gildi í þjónustu og meðferð mála.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“

Þórdís Kolbrún tætir kæruna á hendur Þorgerði Katrínu í sig – „Þetta er aumkunarvert uppátæki“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“

Maðurinn sem komst lífs af opnar sig um slysið – „Ég spennti af mér beltið og fór“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp

Írönsku valdamennirnir lágu sumir í rúmum sínum þegar þeir voru sprengdir í loft upp
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt

Ísrael og Íran á barmi styrjaldar eftir umfangsmikla árás Ísraels í nótt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna

Dagur húðskammar Viðskiptaráð fyrir hræsni – Beiti sér að hörku gegn fjölskyldum sem hafi lítið á milli handanna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið

Höfðu ekki erindi sem erfiði eftir að hafa sakað byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar um innrás í einkalífið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi

Guðmundur Karl Snæbjörnsson sviptur lækningaleyfi