fbpx
Miðvikudagur 14.janúar 2026
Fréttir

Glæpagengi í Hafnarfirði kúgaði fé af börnum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 3. desember 2025 10:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hópur manna um tvítugt hefur verið sakfelldur fyrir fjárkúgun og brot gegn barnaverndarlögum vegna brota sem flest voru framin árið 2024.

Dómur var kveðinn upp yfir mönnunum í Héraðsdómi Reykjaness 2. desember en þeir njóta allir nafnleyndar í birtingu dómsins. Alls eru sjö sakborningar í ákærunni en fimm þeirra eru ákærðir vegna atviks sem átti sér stað í strætisvagni nr. 1 í Hafnarfirði sunnudaginn 11. ágúst 2024. Umkringdu mennirnir þá dreng sem sat í vagninum og hótuðu að hleypa honum ekki út úr vagninum nema hann myndi leggja peninga inn á einn þeirra. Kúguðu þeir 11.000 krónur af drengnum með þessum hætti.

Sex eru síðan ákærðir fyrir brot sem framið daginn eftir fyrir utan Hraunavallaskóla í Hafnarfirði. Réðust þeir að dreng, tóku af honum farsíma hans, opnuðu símann með andlitsgreiningu og millifærðu 40.000 krónur af reikningi drengsins yfir á reikning eins ákærða.

Þrír voru síðan ákærðir fyrir brot gegn tveimur drengjum á Víðistaðatúni í Hafnarfirði. Ógnuðu þeir öðrum drengum með skóflu og hótuðu honum líkamsmeiðingum, opnuðu síma hans með andlitsgreiningu og millifærðu 62.000 krónur inn á bankareikning félaga drengsins. Neyddu þeir þann dreng til að fara með einum ákærða á vespu að þremur hraðbönkum í Hafnarfirði í þeim tilgangi að taka út fjármunina, en án árangurs.

Tveir af drengjunum sjö eru síðan ákærðir fyrir ýmis brot, þjófnað, eignaspjöll, líkamsárás og fíkniefnalagabrot.

Atvikum í fyrsta ákærulið er lýst svo orðrétt í dómnum:

„Brotaþoli, X, kom ásamt foreldrum sínum á lögreglustöð þriðjudaginn 10. september 2024 og lagði fram kæru vegna ráns sem hafi átt sér stað í strætisvagni að kvöldi
sunnudagsins 11. ágúst 2024. Hann kvaðst hafa farið í strætisvagn ásamt tveimur félögum sínum í Hafnarfirði og þegar vagninn hafi stöðvað við Bónus á Völlunum hafi komið inn í strætisvagninn nokkrir félagar saman, líklega sex. Einn þeirra, sem hafi talað ensku, hafi beðið brotaþola að taka upp símann sinn og sýna sér bankareikning sinn og spurt brotaþola hvort hann ætti pening. Hann kvaðst ekki eiga pening en þá hafi þessi aðili tekið símann af brotaþola og séð að hann ætti pening á sparnaðarreikningi. Aðilinn hafi sagt brotaþola að leggja inn á sig og brotaþoli kvaðst hafa gert það þegar hann hafi verið á leið út úr strætisvagninum. Brotaþoli hafi lagt 11.000 krónur inn á aðilann sem hafi sagt að brotaþoli myndi ekki fara út úr strætisvagninum nema hann myndi leggja inn á aðilann. Brotaþoli lýsti því að viðkomandi hafi verið dökkhærður, líklega með skegg, með ör á annarri augabrúninni og með eyrnalokka. Hann hafi örugglega verið útlendingur. Hann og félagar hans hafi verið ógnandi. Tveir hafi setið hjá félögum brotaþola fyrir aftan hann en hinir fyrir framan brotaþola. Brotaþoli kvaðst hafa hugsað bestu leiðina til að koma sér út úr aðstæðunum án þess að skaðast. Hann hafi talið best að láta viðkomandi hafa pening.“

Upptökur úr öryggismyndavél strætisvagnsins voru lagðar fram við dóminn og studdu þær framburð brotaþola.

Vægir dómar

Mennirnir voru að mestu sakfelldir samkvæmt ákæru. Þyngsti dómurinn var 18 mánaða fangelsi en þar af eru 15 mánuður skilorðbundnir. Annar úr hópnum fékk  síðan 15 mánaða fangelsi en þar af eru 12 mánuðir skilorðsbundnir.

Refsingu yfir hinum fimm sakborningunum er frestað skilorðsbundið og fellur niður að þremur árum liðnum ef þeir halda skilorð.

Tveir helstu sakborningarnir eru dæmdir til að greiða fjórum brotaþolum um 600 þúsund krónur hverjum í miskabætur.

Ítarlegan dóm í málinu mál lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Flosi rifjar upp sögu af þekktum manni: „Frekur, dónalegur og sífellt öskrandi á stúlkurnar að þjónusta sig“

Flosi rifjar upp sögu af þekktum manni: „Frekur, dónalegur og sífellt öskrandi á stúlkurnar að þjónusta sig“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hörður fellur frá málarekstri sínum gegn Hödd

Hörður fellur frá málarekstri sínum gegn Hödd
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Svarar til saka – Stofnaði barni í lífshættu með því að skilja hlaupbangsa eftir á glámbekk

Svarar til saka – Stofnaði barni í lífshættu með því að skilja hlaupbangsa eftir á glámbekk
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Búið að leggja fram frumvarp um innlimun Grænlands í Bandaríkin

Búið að leggja fram frumvarp um innlimun Grænlands í Bandaríkin
Fréttir
Í gær

Grænlendingar hafa lítið álit á Trump – „Hann er klikkaður. Allir vita það“

Grænlendingar hafa lítið álit á Trump – „Hann er klikkaður. Allir vita það“
Fréttir
Í gær

Hraunað yfir Stefán Einar vegna ummæla hans um Nönnu – „Þetta er viðurstyggð“

Hraunað yfir Stefán Einar vegna ummæla hans um Nönnu – „Þetta er viðurstyggð“