Fyrrum framkvæmdastjóri Tjarnabíós, Sindri Þór Sigríðarson, er grunaður um fjárdrátt í starfi en honum var nýlega sagt upp störfum. Vísir greindi frá þessu í hádeginu og nú hefur leikhússtjóri Tjarnabíós, Snæbjörn Brynjarsson, staðfest tíðindin.
Snæbjörn skrifar á Facebook að málið sé mikið áfall fyrir starfsfólk Tjarnarbíós, listafólk og aðra velunnara. Snæbjörn segist hafa leitað ráðgjafar sérfræðinga og er nú búið að safna töluverðu magni af gögnum um málið sem verða afhent lögreglu. Til stendur að kæra meint brot til lögreglu.
„Því miður get ég staðfest þær fréttir um að fyrrum framkvæmdastjóri Tjarnarbíós sé grunaður um fjárdrátt. Um er að ræða langt tímabil, eða allt frá lok árs 2021 þegar Sindri fékk aðgang að sjóðum Tjarnarbíós þar til ég uppgötvaði misfellur í bókhaldi Tjarnarbíós í byrjun árs.
Það var mikið áfall fyrir starfsfólk Tjarnarbíós, stjórn, listafólk og aðra velunnara þegar ég lýsti fyrir þeim mínum grunsemdum. Það fyrsta sem ég gerði var að leita til sérfræðinga til ráðgjafar, enda aldrei verið í álíka stöðu. Ég get nú upplýst að við höfum safnað töluverðu magni af gögnum um málið sem við munum afhenda lögreglu, en bæði ég og stjórn Menningarfélagsins höfum fullan hug á að kæra.
Í þessu máli hef ég fyrst og fremst verið að hugsa um hag þeirra fjölmörgu sem starfa í Tjarnarbíó. Mörg hundruð manns á ári hverju koma í húsið til að skapa. Nánast hver einasta sýning þessa dagana er fyrir fullu húsi.
Ég myndi því vitaskuld frekar vilja segja frá uppistandi, söngleikjum, dansverkum og áhrifamiklum einleikjum í fjölmiðlum. En því miður er það þannig að þess í stað verð ég leggja fram kæru og fylgja henni eftir eins vel og ég get.
Ég mun reyna að upplýsa alla fjölmiðla sem óska eftir því eins vel og ég get án þess að spilla rannsóknarhagsmunum í málinu. Og bið ykkur um að senda góða strauma til þeirra listamanna sem eru í húsinu frá því snemma morguns, langt fram á nótt að vinna að sinni listsköpun.“
Snæbjörn segir í samtali við Heimildina að málið snúist um rúmar 13 milljónir. Hann sé sjálfur í áfalli og gáttaður á þessari upphæð. Snæbjörn segist hafa fundað með Sindra og lögmanni og þar hafi Sindri ekki neitað fyrir ásakanirnar.
Tjarnarbíó er óhagnaðardrifið leikhús við Tjarnargötu sem nýtur styrkja frá Reykjavíkurborg og er rekið í húsnæði á vegum borgarinnar.
Sindri Þór var áberandi í fjölmiðlum undanfarin ár eftir að tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, Ingó Veðurguð, kærði hann fyrir meiðyrði. Ingó hafði loks betur í nóvember árið 2023 þegar Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms og gerði Sindra að greiða 900 þúsund krónur í miskabætur og dæmdi fimm ummæli sem Sindri lét falla á samfélagsmiðlum dauð og ómerkt.
Sjá einnig:Ingó lagði Sindra í Landsrétti – Miskabætur og ummælin dæmd dauð og ómerk
Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hafði líka kært Sindra fyrir meiðyrði en þar hafði Sindri betur.