Fréttir

Viktor segir að gervigreind skrifi ekki á vef Iceland Review og gerir athugasemd við umfjöllun Heimildarinnar

Mynd

Viktor Ólason, útgefandi og framkvæmdastjóri Iceland Review, hefur sent frá sér fréttatilkynningu í tilefni fréttar Heimildarinnar um útgáfuna. Heimildin vekur athygli á því að Viktor hafi  birt kynningarmyndbönd, unnin með gervigreind, sem sýni brenglaða mynd af Íslandi. „Eitt myndbandið hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum en þar er Hafnarfjörður auglýstur með gervigreindarrödd sem líkir eftir David Attenborough, þul breskra náttúrulífsmynda. Teiknaður víkingur dansar að „fornum víkingasið“ við lútuleik en á skiltum í kring stendur „Vikarrfjóriður“ og „Hnkarrfjórrður“,“ segir í fréttinni.

Segir í frétt Heimildarinnar að myndböndin hafi vakið furðu netverja og vitnar þar til ummæla tónlistarmannsins Svavars Knúts á samfélagsmiðlinum Bluesky en Svavar segir: „Hvað í ChatGPT fjáranum var ég að horfa á?“

Jafnframt er vakin athygli á því Iceland Review, sem er elsti fjölmiðill landsins sem gefinn er út á ensku og hafi komið út á prenti síðan 1963, hafi hætt prentútgáfu í fyrra. Fjölmiðillinn er nú einungis í vefútgáfu. Fyrirsögn fréttar Heimildarinnar er: „Elsta blað Íslands á ensku skiptir úr prenti í gervigreind.“

Viktor segir í tilkynningu sinni að fagfólk skrifi áfram efni á vef útgáfunnar en hún nýti sér gervigreindina í markaðssetningu. Segir hann að þeir sem haldi því fram að rangt sé að prófa sig áfram með gervigreindartækni skipi sér í flokk þeirra sem haldi að internetið sé bóla. Í tilkynningunni segir meðal annars:


  • Það fer enginn úr prenti í AI, Iceland Review bar gæfa til þess að eigendur vörumerkisins á þeim tíma þegar netið fór á flug hófu að segja daglegar fréttir á ensku og þýsku, sem hefur skila vörumerkinu einu hæsta sk. Domain authority og t.a.m. sendir Google um 185.000 gesti til Icleland Review mánaðarlega. Iceland Review hefur því verið lengi á netinu en er að nýta sér AI í markaðssetningu.
  • Iceland Review mun áfram segja daglegar fréttir og fjalla um menningu, listir, mannlíf og öðru skemmtilegu sem tengist Íslandi og er eingöngu ætlað útlendingum.
  • Iceland Review er í dag orðið margmiðlunar “heimur“ á 8 tungumálum sem fær yfir 2 milljónir heimsókna í hverjum mánuði og er því orðin eini íslenski valkosturinn við að auglýsa hjá Google og Meta. Auk þess hefur Iceland Review sterka og sívaxandi stöðu í Kína og er með einkasamning við Kínverska ríkissjónvarpið og vefi á þess vegum.
  • Það er rétt að Iceland Review er að nýta sér AI tæknina en ekki til skrifta, áfram er fagfólk að skrifa efni á vefinn, bæði opna hluta vefjarins og eins þann sem eingöngu er fyrir áskrifendur (að netútgáfunni þar sem m.a. má finna öll eintök tímaritsins frá upphafi; 1963)
  • AI er staðreynd og með notkun þessarar tækni má lækka kostnað verulega fyrir auglýsendur og markaðssetjendur. Jú þessu fylgja barnasjúkdómar sem sífellt þarf að laga en það á ekki að stoppa fólk við að nota og þróa.
  • Að halda öðru fram en að AI og að prófa sig áfram með þá tækni sé rangt skipa sér í flokk þeirra sem halda að Internetið sé bóla“


Hér að neðan er myndbandið um Hafnarfjörð sem Heimildin gerir að umfjöllunarefni.