Volodymyr Zelenskyy, forseti Úkraínu, hefur sagt að markmiðið með innrásinni sé að mynda „stuðpúðasvæði“ svo Rússar eigi erfiðara með að ráðast á Úkraínu.
Margir sérfræðingar töldu hins vegar að markmiðið væri að reyna að draga rússneskar hersveitir frá Donetsk en þar hafa Úkraínumenn átt í vök að verjast síðustu mánuði og hafa tapað töluverðu landsvæði í hendur Rússa.
Nú bendir ýmislegt til að innrásin í Kúrsk sé farin að skila árangri. CNN hefur eftir Oleksandr, Syrskyy, yfirmanni úkraínska hersins, að sókn Rússa að bænum Pokrovsk, sem er lykilbær í Donetsk, sé nú stopp. „Síðustu sex daga hefur óvinurinn ekki getað sótt einn metra fram í átt að Pokrovsk. Með öðrum orðum, taktík okkar virkar,“ sagði hann.
Hann sagði einnig að einnig hafi dregið úr þunga árása Rússa á öðrum svæðum í austurhluta Úkraínu.
TV2 hefur eftir Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingi við danska varnarmálaskólann, að hann telji þetta vera rétt hjá Syrskyy og þetta bendi til að Rússar séu að verða uppiskroppa með hermenn og hergögn í Donetsk. Hann benti á að þeir hafi orðið fyrir miklu mannfalli og misst mikið af hergögnum í sókninni að Pokrovsk og nú virðist sem sókn þeirra hafi stöðvast. Það þýði þó ekki endilega að hún hafi stöðvast að eilífu. Hann benti einnig á að fréttir hafi borist af því að Úkraínumenn hafi flutt tvær stórar herdeildir til Donetsk til að styrkja varnirnar þar.
Í umfjöllun Forbes um sókn Rússa að Pokrovsk segir að hún hafi reynst þeim dýrkeypt og er tekið sem dæmi að á einu degi, sunnudeginum 1. september, hafi þeir misst allt að 180 ökutæki.