fbpx
Miðvikudagur 04.desember 2024
Fréttir

Sjúkratryggingar semja um lýðheilsutengdar aðgerðir

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 7. nóvember 2024 15:53

Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjúkratryggingar Íslands hafa lokið samningsgerð vegna lýðheilsutengdra aðgerða fyrir árið 2024. Samningarnir gilda til áramóta en samhliða er unnið að samningum til lengri tíma. Lýðheilsutengdar aðgerðir eru skurðaðgerðir og önnur inngrip sem eru ekki bráðaaðgerðir og yfirleitt ekki langtíma- eða endurtekin meðferð við langvinnum veikindum. Þessar aðgerðir eru valkvæðar þannig að hægt er að skipuleggja þær fram í tímann og eiga það sammerkt að geta komið viðkomandi einstakling aftur til heilsu og í samfélagslega virkni. Það er mikill ávinningur fyrir einstaklinga og samfélagið allt að auka aðgengi að slíkum aðgerðum.

„Hér er um að ræða aðgerðir sem hafa mikil áhrif á lífsgæði fólks. Markmiðið sem unnið hefur verið eftir er að tryggja sjúklingum jafnt og tímanlegt aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

Willum Þór bendir jafnframt á að þeir samningar um lýðheilsutengdar aðgerðir sem hafa verið í gildi á þessu ári hafi nýst vel, sýnt fram á árangur og stuðlað að skilvirkari nýtingu alls heilbrigðiskerfisins og mannauðsins sem þar starfar.

Samningar um lýðheilsutengdar aðgerðir falla vel að heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þar sem þær tryggja jafnt og tímanlegt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Á árinu 2024 var samið um kaup á samtals 710 liðaskiptaaðgerðum á bæði hné og mjöðm, 190 kviðsjáraðgerðum vegna endómetríósu, 138 bakaðgerðum vegna brjóskloss og þrenginga í mænugöngum og allt að 840 augasteinsaðgerðum.  Aðilar að samningum Sjúkratrygginga vegna aðgerðanna árið 2024 eru Cosan ehf., Klíníkin ehf., Lentis ehf. og Stoðkerfi ehf.

Samningar til lengri tíma mikilvægir

,,Við erum afar ánægð að hafa náð að klára samninga þessa árs og erum byrjuð á því að koma þessum aðgerðarhópi í fastari skorður. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fjölda fólks sem hefur þurft að bíða lengi eftir þessum aðgerðum,“ segir Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.

Samhliða kaupum Sjúkratrygginga á lýðheilsutengdum aðgerðum fyrir árið 2024 hefur verið unnið að samningum til lengri tíma til að tryggja jafnræði, fyrirsjáanleika, aukið aðgengi og samfellu í þjónustunni.  Lagt er upp með að þeir samningar taki við núgildandi samingum um áramót og taki jafnframt til brjóstaminnkunaraðgerða og efnaskiptaaðgerða til viðbótar við þá aðgerðarflokka sem þegar hefur verið samið um.  Stefnt er að því að þeir samningar verði að minnsta kosti til þriggja ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Einar segir Guðmund Andra hafa hæðst að sér þegar hann fékk ekki listamannalaun – „Með tæpar tvær milljónir á mánuði fyrir þægilega þingsetu“

Einar segir Guðmund Andra hafa hæðst að sér þegar hann fékk ekki listamannalaun – „Með tæpar tvær milljónir á mánuði fyrir þægilega þingsetu“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Vann í lottóinu um helgina: „Með öran hjartslátt langt fram eftir laugardagskvöldinu“

Vann í lottóinu um helgina: „Með öran hjartslátt langt fram eftir laugardagskvöldinu“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Andrés kallar eftir hjálp – „Þetta eru tveir strákar 18 ára gamlir með öll sín skólagögn og persónulega hluti inn á tölvunum sínum“

Andrés kallar eftir hjálp – „Þetta eru tveir strákar 18 ára gamlir með öll sín skólagögn og persónulega hluti inn á tölvunum sínum“
Fréttir
Í gær

Telur Miðflokkinn hafa klúðrað stórsigri – Höfnuðu blessun Guðs og settu gamla jálka í efstu sæti

Telur Miðflokkinn hafa klúðrað stórsigri – Höfnuðu blessun Guðs og settu gamla jálka í efstu sæti
Fréttir
Í gær

Þriðjudagstilboð Domino´s hækkað um helming á rúmum þremur árum

Þriðjudagstilboð Domino´s hækkað um helming á rúmum þremur árum
Fréttir
Í gær

Arfurinn sem hún fékk á barnsaldri reyndist dýrkeyptur á fullorðinsárunum

Arfurinn sem hún fékk á barnsaldri reyndist dýrkeyptur á fullorðinsárunum