

Í fréttinni kemur fram að Morgunblaðið hafi leitað til Birgis eftir að viðmælendur blaðsins höfðu lýst vanlíðan gyðinga hér á landi. Sjálfur heimsótti hann Ísrael og Palestínu eftir voðaverkin 7. október þegar vígamenn á vegum Hamas réðust á óbreytta borgara í Ísrael.
Birgir segist hafa rætt nýlega við gyðinga sem búsettir eru á Íslandi en gyðingasamfélagið hér telur um 400 manns.
„Ég fékk leyfi til að segja frá því hvernig þeim liði, en ég mátti ekki nafngreina þá sem ég ræddi við og þeir vildu ekki að mynd yrði birt af okkur. Þeir segjast finna fyrir vaxandi gyðingahatri hér á landi og vilja helst ekki að þeir þekkist á götu úti. Þeir passa vel upp á að ísraelski fáninn sé hvergi sýnilegur þar sem þeir eru. Það er óhætt að segja að þeir fari með veggjum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.
Hann bætir við að tilfinning þeirra sé að rödd Ísraels varðandi stríðið heyrist ekki í fjölmiðlum hér á landi og margar rangar fullyrðingar frá Hamas-samtökunum endurómaðar og birtar sem sannleikur.
„Vegna stríðsins á Gasa hafa börn gyðinga orðið fyrir aðkasti hér á landi. Þau hafa orðið fyrir einelti á netinu og í skólum af íslenskum börnum og einnig múslímskum skólafélögum sem hafa arabísku að móðurmáli. Þess eru dæmi að börn hafi þurft að skipta um skóla vegna þessa. Þá var gyðingi neitað um afgreiðslu í verslun fyrir jólin í Reykjavík fyrir það eitt að vera gyðingur,“ segir Birgir við Morgunblaðið þar sem nánar er fjallað um þetta mál.