Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt athafnamanninn Jóhann Jónas Ingólfsson í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leigja atvinnuhúsnæði í Þverholti 18 með ófullnægjandi brunavarnir til búsetu fyrir allt að átta einstaklinga. Mat slökkviliðs Reykjavíkur á húsnæðinu var að bráð íkveikjuhætta væri í húsinu.
Engin brunahólfun var til staðar í húsnæðinu til að takmarka útbreiðslu elds og reyks, flóttaleiðir voru ófullnægjandi, loft varklætt auðbrennanlegu plasti og bil veggja og lofts voru fyllt hraðbrennanlegu efni, ástand raflagna var óásættanlegt og skapaði eldhættu, auk þess sem starfsemi sem fór fram í húsnæðinu fól í sér íkveikjuhættu og aukin brunahætta var vegna mikils eldsmatar í húsnæðinu.
Brotin áttu sér stað á árunum 2017 og 2018 í gegnum félögin Verktakar já Art2b og Já iðnaðarmenn verkstæði ehf.
Með athæfi sínu er Jóhann Jónas sagður hafa í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt stofnaði lífi leigjenda sinna í hættu. Hann játaði sök í málinu en fór fram á lægstu mögulegu refsingu. Þá var metið til refsilækkunar að brotin áttu sér stað fyrir sex árum og dráttur hefði verið á málinu sem Jóhann bar ekki ábyrgð á.
DV hefur í gegnum árin ítrekað fjallað um brotaferil Jóhanns sem og slóð gjaldþrota og kennitöluflakks sem hann hefur skilið eftir sig. Í mars á þessu ári fjallaði DV um gjaldþrot Já iðnaðarmanna verkstæði ehf. en rekstri hefur hann haldið áfram á kennitölu mömmu sinnar. Rekur hann verktakafyrirtæki sem tekur að sér margskonar verkefni og hafa reglulega borist kvartanir til eftirlitsaðila vegna starfseminnar.
Árið 2021 var hann dæmdur í 11 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik og til greiðslu himinhárrar sektar til ríkissjóðs, yfir 100 milljónir króna. Hann var dæmdur fyrir fíkniefnasmygl og kynferðisbrot á tíunda áratug síðustu aldar.
DV greindi frá því í júlí 2018 að egypskur hælisleitandi hefði verið handtekinn eftir að hafa dregið upp hníf í húsnæðinu en hann taldi Jóhann hafa svikið sig um réttmætt laun. Hann freistaði þess að fá launin greidd á skrifstofu fyrirtækisins en þegar það gekk ekki eftir þá dró hann vopnið á loft og hugðist leita hefnda.