Greint var frá því í fréttum í gær að nú þurfa allir gestir Perlunnar að kaupa aðgangsmiða að byggingunni. Á það við um alla sem ætla inn í bygginguna hvort sem þeir ætla sér aðeins á kaffihúsið, veitingastaðinn eða útsýnispallinn.
Aðgangsmiði fyrir fullorðna kostar 5.390 krónur og fyrir 6-17 ára kostar miðinn 3.390 krónur, frítt er fyrir yngri en sex ára, en væntanlega þá í fylgd með fullorðnum. Innifalið í verðinu er aðgangur að byggingunni, útsýnispallinum, norðurljósasýningunni Áróra og sýningum Wonders of Iceland.
Fyrir Íslendinga er sérstakt vildarvinakort Perlunnar í boði, kortið er frítt og veitir frían aðgang að byggingunni. Á heimasíðu Perlunnar má lesa skilmála kortsins og segir það að það fáist frítt í afgreiðslu Perlunnar. Kortið veitir handhafa þess afslátt af sýningum og veitingum í Perlunni.
Umræða skapaðist um málið í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi og segir sá sem byrjar umræðuna „Þá er Perlan aldeilis komin á kortið, því það á að rukka 5.400 kr. fyrir að stíga inn fyrir dyr helgidómsins. Ég bíð spenntur eftir að sjá hvort að Perlunni verður heimilað að mismuna erlendum gestum sem vilja sækja um vildarvinakort til að spara sér fúlgur fjár við innganginn – hvað ætli ESA hafi að segja um það?“
Kona ein segir: „Er Perlan ekki opinber bygging en rekstur leigður út til einstakra fyrirtækja. Má þetta bara?“ Annar segir: „NEI TAKK nú eru ísferðir í Perluna bara minningarnar einar.“
Nokkrir velta fyrir sér hvort megi mismuna svona milli heimamanna og ferðamanna: „Eitthvað skrýtið við þetta, ef útlendingur ætlar bara á kaffihúsið, veitingastaðinn eða á útsýnispallinn þá þarf hann að borga en ef íslendingur ætlar að gera það sama þá getur hann sótt um ókeypis vildarvinakort og þarf ekki að borga sig inn. Svo fær íslendingurinn líka þá afslátt af þjónustu og veitingum í Perlunni. Kallast þetta ekki mismunun eða bara vilji til að græða á útlendingum?“
Nokkrir benda á að einnig þurfi að greiða aðgang að þekktum byggingum erlendis, þó að einni konu finnist Perlan frekar ómerkileg í samanburðinum: „Perlan er ekki Effelturn eða Rocckefeller Center eða hvað sem það heitir…Perlan er ekkert miðað við það…hvað halda þeir eiginlega að Perlan sé…bulla ekkert annað.“
Perlan er eitt af þekktustu kennileitum höfuðborgarinnar Reykjavík, og sést víða að hvar sem er í bænum. DV ákvað að kanna nokkur þekkt kennileiti í borgum Evrópu og hvað aðgöngumiðinn kostar. Verðin eru í íslenskum krónum miðað við gengi í dag.
Aðgangur að turninum er með ýmsum hætti, hægt er að velja að taka lyftu upp á 2. hæð eða taka lyftu alla leið á toppinn, ganga upp á 2. hæð, eða ganga upp á 2. hæð og taka síðan lyftuna þaðan upp á toppinn.
Lyfta upp á 2. hæð / Lyfta upp á topp / Stigi upp á 2. hæð / Stigi upp á 2. hæð og lyfta upp á topp
Fullorðnir 2.811 / 4.396 / 1.764 / 3.349
Ungmenni 12-24 ára 1.405 / 2.093 / 882 /1.675
Börn 4-11 ára 703 / 1106 / 449 / 852
Hreyfihamlaðir 703 / 1106 / 449 / 852
Kaþólska kirkjan Yfirbótakirkja heilögu fjölskyldunnar hefur verið í byggingu síðan 1882. Áætlað er að byggingu kirkjunnar verði lokið árið 2026.
Miðar miðast við einstaklinga, hópa frá 10-30 manns og skólahópa. Hægt er að kaupa:
miða og hlaða niður appi sem leiðbeinir manni um bygginguna, 3.887 kr.
kaupa miða með leiðsögumanni, 4.485 kr.
kaupa miða með leiðsögumanni og aðgang að turni, 5.980 kr.
kaupa miða án leiðsögumanns og aðgang að turni, 5.383 kr.
Frítt er fyrir börn yngri en 11 ára og hreyfihamlaða með einum aðstoðarmanni.
Buckinghamhöll er opinbert aðsetur bresku konungsfjölskyldunnar í London. Daglega stilla þúsundir ferðamanna sér fyrir utan höllina og fylgjast með varðaskiptum, sem er skemmtilegt sjónarspil. Hluti af höllinni er opinn á hverju ári og nú í sumar er opið 11. júli til 29. september.
Verð eru bókað fyrirfram eða á staðnum:
Fullorðnir 5.594 / 6.118
Ungmenni 18-24 ára 3.583 /3.933
Börn 5-17 ára 2.796 / 3.059
Hreyfihamlaðir 2.796 / 3.059
Börn yngri en fimm ára Frítt
Aðstoðarmenn hreyfihamlaðra Frítt
Klukkuturn tilheyrir dómkirkjunni í Písa. Turninum var ætlað að standa lóðrétt, en stuttu eftir byggingu hans í ágúst 1173 tóku undirstöður hans að síga og hann því að hallast, en turninn hallar um 4 gráður.
Börnum yngri en átta ára er ekki heimilt að fara í turninn og börn á aldrinum 8-18 ára verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Verð aðgöngumiða er 3.962 kr. og einungis er heimilt að vera 30 mínútur í turninum.
Ljóst er af þessum stutta samanburði að einungis eitt verð er dýrara en aðgöngumiði að Perlunni, heimsókn í hina spænsku La Sagrada Familia þar sem heimsókn með leiðsögumanni og aðgangur að einum turni kostar 5.980 krónur.