Medvedev er einna þekktastur þessi misserin fyrir ummæli sín um stríðið og Vesturlönd. Hann tjáir sig reglulega á samfélagsmiðlum og hefur í hótunum um beitingu kjarnorkuvopna og kallar vestræna stjórnmálamenn „rýtandi svín“.
Þegar hann ræddi við fréttamenn sagði hann að sú þróun sem nú á sér stað á vígvellinum sé ekki slæm. „Hvort það verður grafið hægt undan valdamönnum í Kyiv eða hvort pólitíska kerfið hrynji skyndilega er erfitt að segja. En það er ekki hægt að stöðva þetta ferli,“ sagði hann.
Hann viðraði einnig hugmyndir sínar um hvernig Rússar munu stjórna íbúum Úkraínu ef þeir sigra í stríðinu: „Það er fólk sem situr og hugsar: „Við störfum með þeim sterkasta.“ En við verðum að starfa með öllum. Við neyðumst til að sannfæra þetta fólk um að við séum komin aftur fyrir fullt og allt. Ef það er fólk sem skaðar Rússland, þá verður að afhjúpa það og refsa. Það verður samstundis sent til Síberíu og endurmenntað í þrælkunarbúðum.“
Hann líkti síðan stöðunni í Úkraínu, eftir hugsanlegan rússneskan sigur, við stöðuna í Þýskalandi að síðari heimsstyrjöldinni lokinni. „Þegar síðari heimsstyrjöldinni var lokið, voru leiðtogar Þýskalands Hitlers, aðgerðasinnar úr nasistaflokknum, SS og úr hinu pólitíska kerfi dregnir fyrir dóm. Sumir voru teknir af lífi, en ekki margir.“
Eins og gerðist í Þýskalandi vill Medvedev láta flesta venjulega borgara sleppa algjörlega við refsingu og hefndaraðgerðir.
„Stærsti hlutinn af þýsku stríðsvélinni sneri aftur heim þar sem þeim var fyrirgefið ef fólkið hafði ekki verið dæmt fyrir glæpi gegn mannkyninu, þjóðarmorð, útrýmingu fólks vegna þjóðernis þeirra og þess háttar. Skynsemi af þessu tagi á einnig að ráða hér,“ sagði hann.