Þetta sagði Andriy Yusov, talsmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, um forsetann. Hann sagði einnig að gervigreind hafi verið notuð til að búa til áramótaávarp Pútíns. Þessu til sönnunar hefur verið bent á að háls Pútíns hafi ekki verið í takt við líkama hans í nýársávarpinu, það hafi litið út eins og höfuð hans hafi verið sett á háls hans fyrir sjónvarpsávarpið.
Mirror bendir á að þessi ummæli ýti undir vangaveltur um hvort hinn raunverulegi Pútín hafi í raun og veru fulla stjórn á því sem fer fram í Kreml.
Yusov segir að margir heimildarmenn hafi staðfest að Pútín notist við tvífara. „Þetta eru ekki lengur neinar fréttir eða eitthvað sem þarf að sanna fyrir umheiminum,“ sagði Yusov.
Aðrir telja að tvífararnir komi í stað Pútíns vegna alvarlegra veikinda hans og að hann sé hugsanlega í felum í neðanjarðarbyrgi af ótta um eigið öryggi.
Kyrylo Budanov, yfirmaður leyniþjónustu úkraínska hersins, sagði á síðasta ári að hinn raunverulegi Pútín hafi ekki sést síðan í júní 2022 og að vitað væri um að minnsta kosti þrjá tvífara hans sem væru undir harðri stjórn rússnesku leyniþjónustunnar.
Valery Solovey, stjórnmálaskýrandi, segir að notast hafi verið við tvífara Pútíns síðan í október á síðasta ári því þá hafi hann látist. Hann birti myndband og myndir af Pútín í síðasta áramótaávarpi sínu og áramótaávarpi hans 2022. „Eins og þið sjáið greinilega, og mikilvægast af öllu heyrið í tveimur ALGJÖRLEGA ólíkum einstaklingum,“ skrifaði hann.
Á 2022 útgáfunni virðist andlit Pútíns vera mjög bólgið miðað við andlitið 2024. Á Telegramrásinni SVR, sem hefur lengi haldið því fram að notast sé við tvífara Pútíns, segir að aðaltvífarinn eigi fljótlega að fara í lýtaaðgerð til að gera hann enn líkari Pútín.