fbpx
Þriðjudagur 05.desember 2023
Fréttir

Bandaríkin ætla að láta Úkraínu fá langdræg flugskeyti – Hernaðarsérfræðingur segir ákveðið skotmark upplagt fyrir þau

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 26. september 2023 07:00

Himars-kerfið frá Bandaríkjunum í notkun í Úkraínu. Mynd:Twitter/Oleksii Reznikov

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að í nýjasta stuðningspakka Bandaríkjanna til Úkraínu verði langdræg flugskeyti  af gerðinni ATACMS en þau draga allt að 300 km. Þau hafa lengi verið ofarlega á óskalista Úkraínumanna yfir þau vopn sem þeir telja sig þurfa til að sigrast á rússneska innrásarhernum.

Ekki er vitað hvenær flugskeytin verða afhent en fram að þessu hafa Bandaríkjamenn verið hikandi við að láta Úkraínumenn fá flugskeyti af þessari tegund, meðal annars vegna þess að þeir eiga ekki mikið af þeim og af ótta við að það muni stigmagna stríðið.

ATACMS (Army Tactical Missile System) geta hæft skotmörk langt að baki víglínunum, til dæmis birgða- og vopnageymslur og bækistöðvar rússneska hersins.  Rússar eiga nú þegar í erfiðleikum með birgðaflutninga vegna árása Úkraínumanna.

Það er hægt að skjóta ATACMS með HIMARS flugskeytakerfunum en Úkraínumenn hafa nú þegar nokkur slík kerfi til umráða.

TV2 hefur eftir Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingi hjá danska varnarmálaskólanum, að ATACMS-flugskeytin geti skipt töluverðu máli fyrir Úkraínu.

Hann benti á að síðan í maí hafa Úkraínumenn haft langdræg flugskeyti af gerðunum Storm Shadow, sem eru bresk, og SCALP, sem eru frönsk, til umráða. Þau draga einngi um 300 km. En ATACMS-flugskeytin eru enn öflugri og geta valdið miklu tjóni að sögn Nielsen.

Hann sagði einnig hugsanlegt að þetta hafi keðjuverkandi áhrif þar sem Þjóðverjar fylgi í fótspor Bandaríkjamanna og láti Úkraínumenn fá langdræg flugskeyti.

Hvað varðar notkun ATACMS-flugskeytanna sagði hann að Krím sé upplagt skotmark fyrir þessi flugskeyti. Hægt verði að nota þau til að hæfa brýr og innviði á Krím. Úkraínumenn hafi gert margar árásir á skagann síðustu tvær vikur og valdi miklu tjóni. Má þar nefna að á föstudaginn skutu Úkraínumenn tveimur flugskeytum á höfuðstöðvar rússneska Svartahafsflotans á Krím. Segja Úkraínumenn að æðstu herforingjar Svartahafsflotans hafi setið á fundi í byggingunni þegar þeir gerðu árásina og hafi margir þeirra látist í henni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Vinnuumhverfið er óviðunandi. Álagið er gríðarlegt. Ofan á það getum við gert eitthvað annað við líf okkar og fengið betri laun“

„Vinnuumhverfið er óviðunandi. Álagið er gríðarlegt. Ofan á það getum við gert eitthvað annað við líf okkar og fengið betri laun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsókn staðfestir að erfðaefni Ásu var á strigapoka sem eitt líkið fannst í

Rannsókn staðfestir að erfðaefni Ásu var á strigapoka sem eitt líkið fannst í
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mikilvægasta tækið á heimilinu

Mikilvægasta tækið á heimilinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það er svo margt rangt við þessa framkvæmd alla að mig skortir orð til að lýsa hvað ég er gáttuð“

„Það er svo margt rangt við þessa framkvæmd alla að mig skortir orð til að lýsa hvað ég er gáttuð“